Höttur tapaði báðum leikjunum gegn KFÍ
KFÍ kom til Egilsstaða og vann báða leikina gegn Hattarmönnum um síðustu helgi helgina. Ísfirðingar höfðu yfirburði í fyrri leiknum en sá seinni var jafnari.
KFÍ kom til Egilsstaða og vann báða leikina gegn Hattarmönnum um síðustu helgi helgina. Ísfirðingar höfðu yfirburði í fyrri leiknum en sá seinni var jafnari.
Höttur leikur tvo afar þýðingarmikla leiki við KFÍ frá Ísafirði í 1. deildinni í körfubolta á föstudag og laugardag. Báðir leikir liðanna á Íslandsmótinu verða leiknir á Egilsstöðum.
Tæplega fjörutíu krakka hópur fór á vegum fimleikadeildar Hattar vestur á Akranes um seinustu helgi til að keppa á fyrsta fimleika vetrarins. Árangurinn var frábær. Ferðin var einnig notuð til æfinga.
HK vann Þrótt á Neskaupstað í Mikasa-deildinni í blaki kvenna laugardaginn 3. desember.
Höttur vann ÍG úr Grindavík 105-96 í fyrstu deild karla í körfuknattleik þegar liðin mættust á Egilsstöðum á fimmtudag. Hattarliðið var með undirtökin allan leikinn og er komið í þriðja sæti deildarinnar.
Fyrsti paratvímenningurinn í mótaröð Bridgesambands Austurlands var spilaður á Egilsstöðum fyrir skemmstu. Austurlandsmótið í tvímenningi fer fram á Seyðisfirði um helgina. Góð þátttaka hefur verið í þeim mótum sem búin eru í haust.
Fimmtán aðilar fengu úthlutað úr Spretti, afrekssjóði UÍA og Alcoa, nýverið alls 750 þúsund krónum. Úthlutunin fór fram í íþróttahúsinu á Reyðarfirði að loknu stigamóti í frjálsíþróttum. Alls bárust 37 umsóknir í þessa úthlutun. Veittir eru styrkir í fjórum flokkum.
Höttur tekur á móti Ármanni í 1. deild karla í körfuknattleik á Egilsstöðum í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 18:30. Hattarmenn eru í sjötta sæti með tvo sigra eftir þrjá leiki en Ármenningar hafa unnið einn leik af sínum fyrstu fjórum og eru í níunda sæti.
Bandaríkjamaðurinn Michael Sloan tryggði Hetti sigur á lokasekúndunum annan leikinn í röð þegar liðið vann FSu í 1. deild karla í körfuknattleik 74-76 á Selfossi í gærkvöldi. Þess utan átti hann dapran leik. Hattarmenn áttu í miklum vandræðum með þriggja stiga skyttur Selfyssinga.
Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.