Kajakklúbburinn Kaj stendur fyrir sínu árlega sjókajakmóti sem kennt er við Egil Rauða um hvítasunnuhelgina. Í boði á mótinum, sem er bæði fyrir byrjendur sem lengra komna, verða ýmis kajaknámskeið, æfingar í sjó og sundlaug, róðrarferðir, fyrirlestrar, sprettróður, veltukeppni og reipafimi.
Heimurinn virðist varla nægja íbúum Djúpavogshrepps. Þeir hafa nýlega seilst svo langt að slá eign sinni á nýjasta liðið í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta, sem meira að segja kemur frá Wales.
Höttur og Samkaup undirrituðu nýverið samstarfssamning sem gerir það að verkum að Samkaup verður einn af aðalstyrktaraðilum barna- og unglingastarfs Hattar.
Höttur og Fjarðabyggð unnu andstæðinga sína í annarri deild karla í dag
bæði með fjögurra marka mun. Höttur er í efsta sæti deildarinnar því
liðið hefur betra markahlutfall en Fjarðabyggð.
Höttur og Leiknir Fáskrúðsfirði eru úr leik í bikarkeppni karla. Bæði
liðin töpuðu 5-0 fyrir úrvalsdeildarliðum í sextán liða úrslitum í gær. Fjöldi leikja verður á Austurlandi um helgina.
Höttur er í öðru sæti annarrar deildar karla í knattspyrnu eftir 1-3
sigur á Njarðvík um seinustu helgi. Fjarðabyggð réttir úr kútnum eftir
erfiða byrjun. Nóg verður um að vera hjá austfirskum knattspyrnuliðum
næstu daga.
Lið Sérdeildarinnar fagnaði sigri í bikarkeppni UÍA og Bólholts í
körfuknattleik eftir 54-53 sigur á Ásnum í úrslitaleik á sunnudag.
Fjögur lið tóku þátt í úrslitakeppninni sem fram fór í
Íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum.