Tíu einföld ráð til að verja sig betur á netinu - Kannski viltu nota Tor?
Article Index
Page 11 of 11
Kannski viltu nota Tor?Til að vafra um Internetið eftir ströngustu reglum nafnleysis er hægt að nota Tor. Tor er í raun þitt eigið net sem skoppar á milli þúsunda beina um allan heim í þeim tilgangi að fela síður sem þú hefur heimsótt eða fela hvaðan þú kemur (IP töluna þína).
Til að komast inn á Tor þá fer maður inn á Tor heimasíðuna, sækir lítinn hugbúnað sem maður keyrir upp í tölvunni. Sá hugbúnaður skráir tölvuna inn á net sem er hluti af Tor-netinu. Því næst opnarðu uppáhalds netvafrann þinn og vafrar um Internetið eins og þú ert vanur/vön að gera.
Þess ber þó að geta að Tor er greinilega ekki 100% nafnlaust eins og sagt er frá í nýlegri frétt. Nemandi í háskóla að komast hjá því að taka próf og tilkynnti um sprengjuhótun til háskólans á prófdegi og notaði Tor netið til þess. Sérfræðingar lögreglunnar sáu samt við honum og náðu honum, þrátt fyrir að hann færi í gegnum Tor netið.