Ég hef miklar áhyggjur af heilsu Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Stofnuninni hefur verið gert að spara enn meiri fjármuni en áður og torvelt er að sjá af hverju á að taka nema draga úr þjónustu þannig að kemur niður á almenningi á Austurlandi. Stofnunin er að telja tíkallana sína.
Samband sveitarfélaga á Austurlandi, SSA, heldur aðalfund sinn í dag og á morgun á Seyðisfirði. Þyngstáhersla verður að þessu sinni lögð á sóknaráætlun fyrir Austurland. Á laugardagsmorgun verðafyrirlestrar undir kjörorðinu Austurland í sókn, og fjalla þeir meðal annars um ferða, menningar- og þekkingmál.
Ég gerði dálitla tilraun tilraun á sjálfri mér á dögunum. Það var í þann mund sem byrjað var á ný að tala um stjórnarkreppu í kjölfar afsagnar Ögmundar og stjórnarandstaða gömlu flokkanna galaði eins og hani á haug um getuleysi og óstjórn ríkisstjórnarinnar.
Eitt höfuðmein okkar hér á Austurlandi er að mínu áliti ósamlyndi. Hér ríkja of víða styrjaldir; smáar í sniðum að vísu, en eigi að síður skæðar. Þær fara fram í bakherbergjum, eldhúskrókum, stjórnsýsluskrifstofum, í búningsherbergjum íþróttahúsa, á vinnustöðum, milli hreppa og sjoppum. Meðal annars.
Vinnustaðasálfræðingarnir Þórkatla Aðalsteinsdóttir og Einar Gylfi Jónsson eru nú að tilhlutan heilbrigðisráðuneytis á Austurlandi til að kanna stöðu mála hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands, HSA. Fjarðabyggð ályktaði fyrir skömmu um að gera þyrfti hlutlausa úttekt á heilbrigðisþjónustu í sveitarfélaginu og eru þetta viðbrögð ráðuneytisins við ályktuninni. Þórkatla og Einar Gylfi ræða í þessari fyrstu lotu m.a. við lykilstarfsmenn HSA til að fá mynd af því sem verið hefur í gangi innan vébanda stofnunarinnar, þ.á.m. vegna mála yfirlæknis Heilsugæslu Fjarðabyggðar.
Fólki brá í brún þegar fréttist af því að ekki yrðu veitt sérleyfi til rannsókna og vinnslu olíu og gass á Drekasvæðinu í ár. Þó menn hér hafi ekki beinlínis haft olíuglýju í augunum vegna Drekans, voru bundnar heilmiklar vonir við að uppbygging vegna rannsókna og undirbúnings setti mark sitt á Vopnafjörð og Langanesið í fyrirsjáanlegri framtíð.
Austurglugginn tekur með mikilli ánægju þátt í verkefni Sameinuðu þjóðanna sem helgað er læsi. Þær hafa allt frá árinu 1965 tileinkað 8. september læsi, þ.e. ritun, tali, lestri og hlustun.
Ákveðið hefur verið að sameina útsendingar svæðisstöðva Ríkisútvarpsins á Norðurlandi og Austurlandi. Nýr frétta- og dægurmálaþáttur hefur göngu sína þriðjudaginn 24. nóvember, sendur út á svæðinu frá Hrútafirði til Hornafjarðar. Útsendingin lengist frá því sem nú er og verður frá kl. 17:20 til 18:00, mánudaga til föstudaga. Það þýðir að nú bætast mánudagar við svæðisútsendingar á Austurlandi.