Snyrtilegur klæðnaður
Í kvöld fer fram hið árlega Fjarðaball sem er haldið fyrir krakka í 8.-10. bekk í öllum grunnskólum á Austurlandi. Þetta er skemmtileg hefð og ungilngurinn á mínu heimili er afar spenntur.Í vikunni fengu við foreldrarnir bréf frá skólanum þar sem farið var yfir tímasetningar, kostnað og slíkt og svo koma reglur um klæðaburð. Í þeim kemur fram að snyrtilegur klæðnaður sé nauðsynlegur. Svo fylgja skilgreiningar á því hvað felst í snyrtilegum klæðnaði. Þetta eru einkum reglur ætlaðar stúlkum.