Nýtum tæknina betur

orvar johannsson x14Þann 31. maí n.k. verður gengið að kjörkössunum þar sem við munum velja þá einstaklinga sem við viljum fela það ábyrgðarfulla verkefni að stýra bænum okkar næstu fjögur árin. Ég ákvað fyrir nokkru síðan að ég væri tilbúinn að gefa kost á mér til þeirra starfa og var treyst til þess að skipa 3. sæti á B-lista Framsóknar-, samvinnu- og félagshyggjufólks og er þar með fólki sem bæði hefur mikla reynslu úr bæjarmálunum sem og nýju fólki sem jafnframt kom þar inn með nýjar hugmyndir.

Lesa meira

Frjálst skólaval á Fljótsdalshéraði

thordur Mar thorsteinsson sigad webNú líður senn að sveitarstjórnarkosningum og línurnar farnar að skerpast hjá hinum pólitísku framboðum. Skólamál á Héraði hafa löngum verið ofarlega á baugi við slík tímamót. Ýmsar hugmyndir hafa komið fram í þeim málum m.a. sameining grunnskóla, frekara samstarf þeirra eða einfaldlega óbreytt ástand.

Lesa meira

Undir forystu Framsóknar

stefan bogi x2014Ef ég er spurður um það hver séu verkefni bæjarstjórnar þá er ég vanur að gefa við því eitt stutt svar: Að bæta búsetuskilyrði íbúanna. Á bak við svona einfalt svar liggur síðan flókinn veruleiki fjármála og stjórnsýslu, skólakerfis, framkvæmda og þjónustu ýmiss konar. Fjárhagslegur veruleiki sníður okkur stakk sem við þurfum að passa í á hverjum tíma. Það er ekki hægt að gera allt sem er þarft og gott, en það er hægt að reyna að forgangsraða og gera það sem mestu skiptir, verja það sem við höfum þegar harðnar á dalnum og undirbúa okkur og skipuleggja fyrir þann tíma þegar aðstæður batna.

Lesa meira

Sátt í „stóra“ Nesgötumálinu

Dyrunn Pala Skaftadottir webEitt stærsta deilumál yfirstandandi kjörtímabils er bygging nýs leikskóla á Neseyrinni og þá einna helst hvort færi eigi Nesgötuna niður fyrir fyrirhugaðan leikskóla. Í mínum huga er það fagnaðarefni að nú skuli loksins glitta í byggingu nýs skóla – eftir um 20 ára langþráða bið fjölskyldufólks í Neskaupstað.

Lesa meira

Skiptir þitt atkvæði einhverju máli?

sigrun blondal x2014Sveitarstjórnarkosningar eru á næsta leiti. Fólk talar um að lítill áhugi sé fyrir kosningunum og fáir ræði um þær. Hvernig stendur á þessu? Við, sem daglega veltum fyrir okkur stöðu sveitarfélagsins og möguleikum, eigum erfitt með að skilja þetta. En um leið verðum við að spyrja okkur hver geti verið ástæðan fyrir þessu áhugaleysi kjósendanna. Höfum við sveitarstjórnarfólkið e.t.v. ekki staðið okkur í að miðla til íbúa hver verkefni sveitarfélagsins eru og hvernig stendur til að leysa þau? Sjá íbúarnir ekki tilgang í að láta skoðanir sínar í ljós því ekkert sé gert með þær?

Lesa meira

Gott heimilisbókhald

jens gardar x2014Að reka sveitarfélag er ekki ólíkt því að reka heimili – sem við öll jú þekkjum.

Í upphafi kjörtímabilsins voru skuldir sveitarfélagsins miklar og verkefnið ærið að ná tökum á skuldum sem sliguðu okkar stóra heimili. Það hefur tekist. Með samhentu átaki höfum við tekið skuldaviðmið sveitarfélagsins úr 230% í 168% ! Enn er mikið starf framundan en þó hefur skapast svigrúm til að koma á móts við íbúana og þá ekki síst ungu fjölskyldurnar sem eru með stóra útgjaldapósta.

Lesa meira

Málefnalegi Fjarðalistinn

hafthor eide hafthorssonAugu mín stóðu á stilkum þennan fallega miðvikudagsmorgun er ég las frétt á Vísi.is undir fyrirsögninni "Frambjóðandi getur ekki hugsað sér að búa á Stöðvarfirði".

Telst það virkilega fréttnæmt hvar einstaklingar vilja og vilja ekki búa? Hugur minn lagði strax saman tvo og tvo. Það styttist nefnilega í sveitastjórnarkosningar í Fjarðabyggð. Ég sá mig því knúinn til þess að rita þessa örstuttu grein enda mér leiðist ómálefnaleg stjórnmálaumræða, sama hvaða flokkur á í hlut.

Lesa meira

Opið bréf til sveitastjórna: Stuðningur við starfsemi svæðisbundinna miðla – til umhugsunar

austurfrett-austurgluggiTilefni þessa bréfs er yfirferð undirritaðra yfir Dagskrá síðustu viku. Af fimm sveitarfélögum þar sem framboðslistar bárust auglýsa kjörstjórnir fjögurra þeirra listana þar. Í Dagskránni, eins og alltaf. Og það var sannarlega ekki það eina sem frá sveitarfélögunum kom í þetta blað, frekar en venjulega.

Lesa meira

Skolar þú örugglega ílát áður en þú hendir þeim?

cleanMyRecycle pall georgsCleanMyRecycle er teymi sem samanstendur af 5 aðilum í Háskólanum í Reykjavík. Hugmyndin á að auka vitund fólks á endurvinnslu og hvetja almenning til frekari þátttöku til endurvinnslu og um leið betrumbæta umhverfi okkar allra. Maðurinn á bakvið hugmyndina er Páll Halldór Schou Georgsson 21 árs viðskiptafræðinemi frá Egilsstöðum.

Lesa meira

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.