Þrjú svínaflensutilfelli eystra
Þrjú tilfelli af svínaflensu, H1N1, hafa greinst á Austurlandi. Unnið er að gerð viðbragðsáætlunar fyrir svæðið. Austfirðingar virðast almennt rólegir vegna flensunnar sem virðist fremur væg.
Amiina í strandferð
Strengjasveitin Amiina heldur tvenna tónleika á Austurlandi um helgina. Klukkan fimm í á föstudag kemur sveitin fram í Bláu kirkjunni á Seyðisfirði og á laugardag verður spilað við Dalatangavita klukkan fjögur.
Unglingalandsmótið austur 2011
Unglingalandsmót UMFÍ árið 2011 verður haldið á Fljótsdalshéraði í umsjón UÍA. Þetta var tilkynnt við setningarathöfn Unglingalandsmótsins sem haldið er á Sauðárkróki um helgina í gærkvöldi. Keppendur eru um 1600 og er mótið það fjölmennasta til þessa.
Tveir toppleikir
Höttur og Fjarðabyggð spiluðu bæði í kvöld leiki sem voru bráðskemmtilegir fyrir hlutlausa áhorfendur. Leikirnir voru erfiðari fyir aðstandendur liðanna og þau sjálf.
Stapamenn útiloka engar framkvæmdir
Kári Arnór Kárason, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðsins Stapa, segir Lífeyrissjóðina tilbúna að skoða fjármögnun sérstakra framkvæmda. Engin sérstök verkefni hafi enn verið skoðuð og því ekki afstaða tekin til þeirra.
Porta skattakóngur
Gianni Porta, yfirmaður Impregilo á Íslandi, greiðir hæstu skattana á Austurlandi í ár, rúmar sautján milljónir króna. Tveir skipstjórar frá Höfn fylgja næstir. Sjómenn eru áberandi á listanum yfir tíu gjaldahæstu einstaklingana í umdæmi skattstjórans á Austurlandi í ár.
Messað í fjórum kirkjum í Múlaprófastsdæmi
Messað ferður í fjórum kirkjum í Múlaprófastsdæmi á sunnudag.
Nýr Austurgluggi og fréttir úr Fljótsdalsstöð
Austurglugginn er sprækur í sumrinu. Auk frétta er stiklað á öllum helstu menningarviðburðum, spjallað við Guðjón Braga Stefánsson afburðanemanda i Danmarks Designskole og bolti vikunnar tæklaður. Með Austurglugganum fylgir nú nýtt 12 síðna upplýsingarit frá Landsvirkjun; Fréttir úr Fljótsdalsstöð. Þar er meðal annars farið yfir rekstur Fljótsdalsstöðvar, vatnsstjórnun lóna, vöktun Hálslóns og hvernig mannvirki öll hafa staðið sig, mótvægisaðgerðir af ýmsu tagi og fleiri forvitnileg mál tengd stöðinni og rekstri virkjunarinnar. Austurglugginn fæst á betri blaðsölustöðum.