Kjördæmisþing VG í Norðausturkjördæmi verður haldið á Hótel Seli í Mývatnssveit, sunnudaginn 8. mars klukkan 14:00. Á dagskrá er tillaga kjörstjórnar um röðun á framboðslista VG fyrir alþingiskosningarnar 25. apríl 2009.
Bernharð Arnarson hefur ákveðið að draga framboð sitt á lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi til baka en hann bauð sig fram í 5. – 8. sæti. ,,Ástæðan er ólíðandi framganga stjórnar Kjördæmasambands Norðausturkjördæmis sem studd er af landsstjórn flokksins.Ákvarðanir þær sem stjórnirnar hafa tekið undangengna daga eru í slíkri andstæðu við öll réttlætis- og jafnræðissjónarmið að annað eins er fáséð og alls ekki í anda eða samkvæmt gildum Framsóknarflokksins," segir Bernharð.
Auknar líkur virðast nú á að olía kunni að finnast á Drekasvæðinu, norðaustur af Íslandi. Nýlegar hljóðbylgjumælingar og endurmat á upplýsingum sem þegar liggja fyrir benda til þess að setlög, svipuð þeim sem finna má á nærliggjandi og jarðfræðilega tengdum olíusvæðum við Noreg og Grænland.
Þróunarfélag Austurlands mun stýra verkefninu Vatnajökulsþjóðgarður, umhverfi og samfélag, og vinna það í samvinnu við Atvinnuþróunarfélög Þingeyinga og Suðurlands. Unnin verður markviss stefnumótunaráætlun fyrir samfélagið í heild þar sem hugsað verður til framtíðar þjóðgarðsins en ekki síður samfélagsins í og við hann.
Höttur á enn möguleika á að bjarga sér frá falli úr 1. deild karla í
körfuknattleik eftir að liðið vann Laugdæli á Egilsstöðum um helgina.
Þróttarstúlkum tókst ekki að koma í veg fyrir að HK yrði
deildarmeistarar í blaki þótt þær ynnu fyrri leik liðanna á Norðfirði.
Kjördæmisráð Frjálslynda Flokksins í Norðausturkjördæmi lýkur nú senn við uppsetningu á framboðslista sínum fyrir komandi alþingiskosningar. Þegar liggur þó fyrir hver mun skipa 1. sæti listans , þ.e. Ásta Hafberg S. og er hún fædd 1971, í Reykjavík þar sem hún ólst upp að mestu. Eiginmaður Ástu er Bastian Stange fæddur 1974 í Stade Þýskalandi, hann er menntaður skipstjóri og vélvirki. Til samans eiga þau 6 börn á aldrinum 6 mánaða, 2ja, 7, 10, 11, og 13 ára.
Sigurlaug Hanna Leifsdóttir býður sig fram í 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í prófkjöri flokksins sem fram fer þann 14. mars. Hún er búfræðingur að mennt og býr í Reykárhverfi í Eyjafjarðarsveit.
Vasagangan í Svíþjóð hófst í gærmorgun. Gengnir eru 90 kílómetrar á skíðum milli Sälen og Mora. Meðal fjölmargra keppenda eru nokkrir Austfirðingar og þar á meðal mun vera Kolfinna Þorfinnsdóttir sem varð sextug á dögunum. Geri aðrir betur.
Fljótsdalshérað og Djúpavogshreppur hafa valið fulltrúa í viðræðunefnd sem sér um að kanna möguleika á sameiningu sveitarfélaga. Fljótsdalshérað og Fjarðabyggð skoða möguleika á sameiginlegri velferðarþjónustu.