Banaslys við Egilsstaði
Banaslys varð á Vallavegi um 10 kílómetrum sunnan við Egilsstaði, við bæinn Ketilsstaði á áttunda tímanum í morgun.Nýr umsjónarmaður á Stórhóli
Þorsteinn Sigjónsson, bóndi að Bjarnanesi í Hornafirði, hefur tekið jörðina Stórhól í Álftafirði á leigu með öllum bústofni fram á haust. Hann tók við allri ábyrgð á búfjárhaldi á bænum um seinustu mánaðarmót. Yfirvöld hafa gert athugasemdir við aðbúnað á öðru austfirsku sauðfjárbúi.
Íbúðalánasjóður eignast 65 íbúðir á Reyðarfirði
Íbúðalánasjóður eignaðist í dag 65 íbúðir við lokasölu íbúða í Melgerisblokkunum fjórum á Reyðarfirði.Jón Björn Hákonarson í fyrsta sæti hjá Framsókn
Jón Björn Hákomarson sigraði í prófkjöri Framsóknarflokksins í Fjarðabyggð í dag. Guðmundur Þorgrímsson varð í öðru sæti. Þeir tveir sóttust eftir fyrsta sætinu í prófkjörinu.
Á góðum batavegi eftir hjartastopp á þorrablóti
Jónína Sigríður Elíasdóttir, sem af þeim er hana þekkja kalla Nonnu, dvelur nú á Sjúkrahúsinu á Akureyri á góðum batavegi, eftir að hafa fengið hjartastopp á Þorrablóti Norður Héraðs á Brúarási.Stefán Bogi sigraði í prófkjöri framsóknarmanna á Fljótsdalshéraði
Stefán Bogi Sveinsson sigraði í prófkjöri framsókanarmanna á Fljótsdalshéraði. Stefán hlaut um 81% gildra atkvæða í prófkjörinu í fyrsta sætið.Sérgreinalæknar frá Landsspítalanum manna heilsugæslustöðina á Eskifirði
Sérgreinalæknar, sem meðal annars hafa þjónað Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað (FSN) í um tíu ár, manna heilsugæslustöðina á Eskifirði. Sá háttur verður hafður á þar til varanlegri lausn finnst.
Landað á Breiðdalsvík
Línubátarnir Ragnar SF 550 og Guðmundur Sig SF 650 frá Hornafirði, lönduðu tæpum 27 tonnum af fiski á Breiðdalsvík í gærkveldi, aflinn var að mestu steinbítur.Jens Garðar leiðir sjálfstæðismenn í Fjarðabyggð
Jens Harðar Helgason,bæjarfulltrúi, leiðir lista Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Valdimar O. Hermannsson, oddviti listans undanfarin fjögur ár, er í öðru sæti.
Awesome guðsþjónusta á Vopnafirði
Poppmessa verður haldin á Vopnafirði á sunnudag í tilefni æskulýðsdags kirkjunnar. Rokkhljómsveit spilar í messunni og krakkar úr Kýros, æskulýðsfélagi Vopnafjarðarkirkju, skreyta kirkjuna og sjá um stóran hluta messunnar.