Sparisjóður Norðfjarðar auglýstur til sölu
Fyrirtækjaráðgjöf H.F. Verðbréfa hefur auglýst allt stofnfé Sparisjóðs Norðfjarðar til sölu. Áhugasamir fjárfestar hafa frest til loka septembermánaðar til að skila inn tilboðum.
Fyrirtækjaráðgjöf H.F. Verðbréfa hefur auglýst allt stofnfé Sparisjóðs Norðfjarðar til sölu. Áhugasamir fjárfestar hafa frest til loka septembermánaðar til að skila inn tilboðum.
Fjárhagsstaða Seyðisfjarðar verður rædd á íbúafundi sem bæjarstjórn kaupstaðarins hefur boðað til í kvöld. Úttektir um stöðuna verða kynntar á fundinum. Skuldir sveitarfélagsins nema 1,4 milljarði króna.
Urðun á almennu sorpi frá íbúum og fyrirtækjum á Fljótsdalshéraði, Seyðisfirði og í Fljótsdalshreppi hófst að nýju á Tjarnarlandi í Hjaltastaðaþinghá í vikunni.
Fjarðabyggð hafði betur gegn Hetti í seinni Austfjarðaslagnum í 2. deild karla í knattspyrnu á Vilhjálmsvelli fyrir skemmstu. Stefán Þór Eysteinsson og Mirnes Smajlovic skoruðu mörk gestanna.
Samanlagt tap á rekstri Seyðisfjarðarkaupstaðar frá árinu 2002 nemur tæpum 680 milljónum króna. Skoðunarmenn segja það alvarlegt umhugsunarefni hversu fjarri áætlunum ársreikningur síðasta árs var. Ný lán eru tekin á hverju ári til að standa skil af eldri afborgunum.
Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, spáir því að 21. öldin verði öld endurnýtanlegra orkugjafa. Hún segir það ekki hins opinbera að velja einn orkugjafa fram yfir annan. Það verði markaðurinn að gera.
Sparisjóður Norðfjarðar er til sölu. Þetta var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum á stofnfjárhafafundi fyrir skemmstu. Stjórnarformaður sjóðsins segir sparisjóðakerfið hafa orðið of dýrt eftir að stærstu sparisjóðirnir drógu sig út úr samstarfinu.
Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, útilokar að vinnubúðum Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði verði breytt í fangelsi. Útlit er fyrir að þær verði fjarlægðar á árinu.
Fjölbreytni orkugjafa samgöngutækja eykst í framtíðinni. Þetta er mat Jóns Björns Skúlasonar, verkefnisstjóra hjá Grænu orkunni. Um alla Evrópu prófa menn sig áfram með mismunandi hvata fyrir bifreiðaeigendur til að skipta um orkugjafa.
Dr. Karen Meech, stjarnfræðingur við Stjarnlíffræðistofnunina við Hawaii háskólann og Dr. Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur við Edinborgarháskola, NASA Astrobiology Institute ásamt Breiðdalssetri, Breiðdalshreppi og Hótel Bláfelli standa fyrir vísindalegum vinnufundi á Breiðdalsvík þar sem tuttugu og þrír valinkunnir vísindamenn víðs vegar að úr heiminum leita svara við spurningunni um uppruna vatns á jörðinni.
Sjötíu milljóna króna tap varð á rekstri Seyðisfjarðarkaupstaðar á seinasta ári þótt gert væri ráð fyrir hagnaði í áætlunum. Unnið er að úttekt á stöðu og rekstri sveitarfélagsins.
Hagsmunaaðilar við Jökulsá á Dal vilja búa til rás meðfram ánni þar sem steinbogi er í henni. Lax stoppar neðan við ána og gerir hana að síður vænlegri veiðiá. Öllum framkvæmdum á svæðinu hefur til þessa verið hafnað á grundvelli náttúruverndarsjónarmiða.
Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.