Ari Trausti Guðmundsson segir að lagt hafi verið að honum að bjóða sig ekki fram til forseta Íslands þar sem það gæti spillt möguleikum Þóru Arnórsdóttur á að fella sitjandi forseta, Ólaf Ragnar Grímsson. Ari Trausti heimsótti yfir tuttugu staði á ferð sinni um Seyðisfjörð og Egilsstaði í gær og heldur áfram ferðinni um Fjarðabyggð í dag.
Gestir á fundi forsetaframbjóðandans Þóru Arnórsdóttur í Menntaskólanum á Egilsstöðum í gær buðust til að passa börnin hennar meðan hún einbeitti sér að framboðinu. Hún segir það forgangsmál sitt, verði hún kjörin, að vinna að sameiningu íslensku þjóðarinnar.
Bæjarráð Fjarðabyggðar lýsir þungum áhyggjum af áhrifum fyrirhugaðra breytinga á reglum um stjórn fiskveiða á atvinnulíf í sveitarfélaginu. Í raun sé verið að handflytja störf og fjármuni af svæðinu.
Olíudreifing ehf. og sveitarfélagið Fjarðabyggð hafa undirritað viljayfirlýsingu sem tryggir fyrirtækinu forgang að 2,2 hektara lóðum undir mögulega þjónustumiðstöð fyrir þau fyrirtæki sem ætla að vinna olíu á Drekasvæðinu. Olíudreifing heitir því einnig að markaðssetja Fjarðabyggð sem ákjósanlegan kost sem miðpunkt athafnasvæðis slíkra fyrirtækja.
Ekki er þörf á að skera fleira fé í bili vegna riðuhreinsunar á bænum Merki á Jökuldal. Öll þau sýni sem tekin voru úr því fé sem skorið var eftir að sýkt kind var greind þar í febrúar reyndust neikvæð.
Austfirskir sveitarstjórnarmenn hafa miklar áhyggjur af framtíð Reykjavíkurflugvallar og áformum borgaryfirvalda um að færa völlinn eða loka hluta hans. Ekki gangi að staðsetning hans sé háð geðþóttaákvörðunum borgarfulltrúa hverju sinni.
Stjórn AFLs Starfsgreinafélags varar við hugsanlegum áhrifum af frumvarpi ríkisstjórnarinnar sem liggur fyrir Alþingi um breytingar á fiskveiðistjórnum og um upptöku auðlindaskatts í sjávarútvegi. Stjórnin telur að með frumvarpinu sé „alvarlega vegið að hagsmunum heilla byggðalaga, starfsöryggi fiskvinnslufólks, sjómanna og útgerðarfyrirtækja sem eru burðarásar búsetu á landsbyggðinni og þar með kjörum þeirra fjölskyldna sem eiga afkomu sína undir fiskveiðum og vinnslu.“
Aðstandendur undirskriftarsöfnunar þar sem skorað er á Alþingi og ríkisstjórn Íslands að byrja strax á nýjum Norðfjarðargöngum eru ánægðir með hvernig gengið hefur. Markmiðið er að fá alla íbúa Fjarðabyggðar, átján ára og eldri, til að skrifa undir.
Austfirskir sveitarstjórnarmenn vara við neikvæðum áhrifum aukinna álagna á innanlandsflug. Erfitt sé orðið fyrir venjulegan launamanna að ferðast milli Austurlands og Reykjavíkur með flugi.
Ekkert hefur komið fram sem gefur tilefni til að endurskoða niðurstöður sem settar eru fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar um embættisfærslur Hannesar Sigmarssonar, fyrrverandi yfirlæknis í Fjarðabyggð. Vinnubrögð við skýrsluna voru í samræmi við reglur og heimildir stofnunarinnar.
Forsetaframbjóðendurnir Ari Trausti Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir eru væntanleg til Austurlands í vikunni. Ari Trausti verður með tvo opna fundi en Þóra heimsækir fyrst og fremst vinnustaði.
Héraðsfréttablaðið Austurglugginn hefur dregið fullyrðingar um að Hannes Sigmarsson, fyrrverandi yfirlæknir Heilbrigðisstofnunar Austurlands í Fjarðabyggð, hafi falsað endurlífgun á sjúklingi til baka. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar, sem blaðið byggir umfjöllun sína á, segir að læknirinn hafi sýnt einbeittan vilja til að smyrja á reikninga.