Hússtjórnarskólinn: Við hagræðum bara enn betur
Fjárframlög ríkisins til Hússtjórnarskólans á Hallormsstað skerðast um 1,4 milljónir króna á milli ára. Skólastjórinn gagnrýnir að systurskólinn í Reykjavík sé alltaf hærri á fjárlögum.
Fjárframlög ríkisins til Hússtjórnarskólans á Hallormsstað skerðast um 1,4 milljónir króna á milli ára. Skólastjórinn gagnrýnir að systurskólinn í Reykjavík sé alltaf hærri á fjárlögum.
Stjórn Svæðisfélags Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs á Héraði, Borgarfirði eystri og Seyðisfirði leggst eindregið gegn þeim harkalega niðurskurði sem boðaður er í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar á þjónustu Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA). Óttast er um samfélagsleg áhrif niðurskurðarins.
Austfirskir hjúkrunarfræðingar segja niðurskurð á fjárframlögum til Heilbrigðisstofnunar Austurlands lýsa algjöru skilningsleysi á þýðingu heilbrigðisþjónustu fyrir íbúa fjórðungsins. HSA gæti þurft að segja upp þriðjungi starfsfólks síns vegna hans.
Austfirskir framhaldsskólar þurfa að taka til í rekstri sínum gangi niðurskurðaráform í fjárlagafrumvarpi næsta árs eftir. Skorið er niður víða í fjórðungnum.
Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, segir að niðurskuður í heilbrigðismálum á Austurlandi megi ekki verða að veruleika. Menn séu aftur að hefja baráttu fyrir tilveru byggðar í fjórðungnum.
Samfylkingarfélag Fljótsdalshéraðs fer ómjúkri hendi um forustu og þingmenn flokksins í ályktun sem samþykkt var á félagsfundi í morgun. Félagið gagnrýnir þingflokkinn fyrir afgreiðslu sína í landsdómsmálinu, umbótanefnd flokksins fyrir hægagang og ógagnsæi og fyrir niðurskurð í heilbrigðismálum á Austurlandi.
Samband sveitarfélaga á Austurlandi boðar til opins borgarafundar um málefni Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Fundurinn verður haldinn í Íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum sunnudaginn 10. október klukkan 15:00.
Á morgun, föstudaginn 15. október, munu nemendur og starfsfólk í Seyðisfjarðarskóla halda Olweusardaginn hátíðlegan Bæjarbúar eru hvattir til að taka þátt í deginum, klæðast grænu og skreyta umhverfi sitt í grænum litum. Samkvæmt eineltishringnum er sá sem berst gegn einelti grænn, það er græni karlinn.
Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi (FOSA) telur fyrirhugaðan niðurskurð á framlögum til heilbrigðismála í fjórðungnum hættulegan byggðaþróun.
Jónína Rós Guðmundsdóttir, þingkona Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, styður ekki óbreyttar tillögur um niðurskurð í heilbrigðiskerfinu. Þar hafi verið byrjað á vitlausum enda.
Boðaður niðurskurður á ríkisframlögum til rekstrar Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) veikir öryggi almennings í fjórðungnum og dregur úr fýsileika svæðisins til búsetu og atvinnurekstrar.
Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.