Veljum Vopnafjörð er verkefni þar sem Vopnafjarðarhreppur og íbúar taka höndum saman um að virkja þann kraft sem býr í Vopnfirðingum, til að efla byggð til framtíðar. Kjörorð verkefnisins eru: YNGRI Vopnafjörður! KRAFTMEIRI Vopnafjörður! FJÖLBREYTTARI Vopnafjörður! Í merki verkefnisins eru þrjár stjörnur, sem tákna þessi þrjú orð. Auk þess er lögð áhersla á jákvætt hugarfar.
Bæjarstjóri Fjarðabyggðar vill að forsvarsmenn Landsbankans endurskoði þá ákvörðun að hætta hraðbankaþjónustu á Stöðvarfirði. Farið er fram á að bankinn standi við eldri fyrirheit um bankaþjónustu á staðnum.
Fáskrúðsfirðingurinn Þórunn Ólafsdóttir eyddi síðustu nótt í tyrkneskum strandbæ en hópur úr hernum reyndi að ræna völdum í landinu í gærkvöldi. Hún segir átökin í Istanbúl og Ankara lítil áhrif hafa haft þar.
Skógræktin, ný skógræktarstofnun sem til varð við sameiningu Skógræktar ríkisins og landshlutaverkefna í skógrækt tók til starfa þann 1. júlí síðastliðinn.
Hjartasteinn, kvikmynd sem tekin var upp að stærstum hluta á Borgarfirði eystra síðastliðið haust, hefur verið valin í til keppni á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum.
Sett hafa verið upp skilti sem vísa veginn til Borgarfjarðar um Hróarstungu frá Jökulsárbrúnni á Heiðarenda. Ekki fæst uppgefið hverjir voru að verki við uppsetningu skiltana en það mun vera algengt að ferðamenn villist á leið til Borgarfjarðar um Tunguna.
Þrír umsækendur voru um starf skólastjóra í samreknum grunn- og leikskóla Borgarfjarðar eystra, var María Ásmundsdóttir Shanko metin þeirra hæfust og hefur henni verið boðið starfið.
Lögreglan á Austurlandi segir helgina hafa farið vel fram í landshlutanum. Óhætt er að segja að þetta sé með stærri skemmtanahelgum hér eystra en ekkert beintengt skemmtanahaldi helgarinnar kom inná borð lögreglu.
Þórunn Ólafsdóttir frá Fáskrúðsfirði sem starfar sem sjálfboðaliði í flóttamannabúðum í Grikklandi hélt Eid veislu í fyrir um 800 flóttamenn í síðustu viku.