Þórunn Egilsdóttir, þingkona Framsóknarflokksins frá Vopnafirði, segir að staldra verði við samgöngumálum og hugsa hvert stefni og fyrir hverja uppbygging í vegakerfinu sé ætluð.
Forsvarsmenn Síldarvinnslunnar óttast að rafvæðing fiskimjölsverksmiðja í hættu þar sem þær geti ekki reitt sig á orku af markaði. Forstjóri Landsvirkjunar segir orkuna til staðar nú en samningana vanti.
Ingibjörg Þórðardóttir, varaþingmaður og framhaldsskólakennari úr Neskaupstað, vill að grunnáfangi í kynjafræði verði gerður að skyldufagi á öllum brautum framhaldsskóla. Mikil vakning hafi orðið eftir að nokkrir skólar fóru að kenna kynjafræði sem valfag.
Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri, telur að niðurskurður í starfsemi RÚV hafi bitnað of harkalega á starfsemi þess á landsbyggðinni á undanförnum árum. Mikil vinna hafi verið lögð í að snúa við rekstrinum undanfarið ár en um leið leitast við að verja dagskrárgerðina.
Fyrirtækið Iceland Resources hefur fengið leyfi til að leita að gulli og kopar í Vopnafjarðarhreppi. Fleiri svæði á Austurlandi gætu innihaldið góðmálma.
Hollensk kona sem grunuð er um að hafa staðið í stórfelldu fíkniefnasmygli ásamt með Norrænu í byrjun september er laus úr gæsluvarðhaldi en sætir nú farbanni. Ósamræmi þykir vera í framburði hjónanna.
Forstjóri Landsvirkjunar segir dóm Hæstaréttar í máli fyrirtækisins gegn Þjóðskrá og Fljótsdalshéraði marka tímamót í skiptingu gjalda af fasteignagjöldum virkjana. Bæjarráð Fljótsdalshérað telur þörf á að endurskoða allt skattkerfi raforkuframleiðslu.
Stofnaður hefur verið hópur áhugamanna um jarðgöng milli Eskifjarðar og Héraðs. Hvatamenn að stofnun hópsins eru: Gísli Hjörtur Guðjónsson og Stefán Víðisson.
Yfirborð Hálslóns náði í 625 metra hæð yfir sjávarmál á föstudag og er lónið þar með komið á yfirfall. Lónið hefur aldrei farið svo seint á yfirfall síðan það var fyrst fyllt síðsumars 2008.