Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað í aðlögunarferli út af skuldum

fljotsdalsherad fjarmalafundur nov12 0005 webStærstu sveitarfélögin á Austurlandi, Fjarðabyggð og Fljótsdalshéraðs, eru bæði á vöktunarlista Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga út af skuldum. Gert er ráð fyrir að skuldir þeirra verði komnar undir 200% af veltu árið 2019.

Lesa meira

Vilhjálmur: Seyðfirðingar hafa ekkert heyrt frá Smyril Line

vilhjalmur jonsson sfk mai12Vilhjálmur Jónsson, bæjarstjóri Seyðisfjarðarkaupstaða, segir forsvarsmenn bæjarins ekkert hafa heyrt frá skipafélaginu Smyril Line, móðurfélagi Norrænu, um hvert markmið þeirra með viðræðum við fulltrúa nágrannasveitarfélagsins Fjarðabyggðar sé.

Lesa meira

Barði NK stopp á Ísafirði vegna bilunar

svn logoBarði NK, skip Síldarvinnslunnar hefur verið stopp á Ísafirði undanfarna þrjá daga vegna bilunar. Skip fyrirtækisins hafa síðustu tvær vikur verið á síldarveiðum á Breiðafirði.

Lesa meira

Jens Garðar: Erindi Smyril Line kom okkur virkilega á óvart

jens gardar helgason mai12Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar, segir ósk Smyril Line um viðræður um að Fjarðabyggðarhafnir verði áfangastaður ferjunnar Norrænu í framtíðinni hafa komið virkilega á óvart. Engin áform hafi verið uppi um að byggja upp ferjuhöfn í sveitarfélaginu.

Lesa meira

Ragnheiður Elín: Álverið er happadrættisvinningur Austfirðinga

ragnheidur elin arnadottir webRagnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir það eins og stóran happdrættisvinning fyrir Austfirðinga að álver Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði hafi komist á laggirnar. Það hafi samt eins og fleiri verkefni byrjað sem hugmynd.

Lesa meira

Framkvæmdastjóri Smyril Line: Þetta eru fyrst og fremst könnunarviðræður

Runi V Poulsen webFramkvæmdastjóri Smyril Line - International segir enga ákvörðun hafa verið tekna um hvort heimahöfn Norrænu verði flutt frá Seyðisfirði til Fjarðabyggðar. Þær viðræður sem fyrirtækið hafi óskað eftir við Fjarðabyggð séu fyrst og fremst ætlaðar til að kanna hvaða þjónustu sé þar að fá.

Lesa meira

Vilja endurskoða lög um byggingarmál út af myglusveppi: Verra en að missa húsið sitt í bruna?

mygluhus vidgerd 0002 webÞrettán Alþingismenn standa á bakvið þingsályktunartillögu sem nýverið var lögð fram um að umhverfis- og auðlindaráðherra skipi starfshóp sem taki til heildstæðrar endurskoðunar lög og reglur um byggingarmál með tilliti til myglusveppa og þess tjóns sem þeir geta valdið. Ályktunin er lögð fram sérstaklega í ljósi þeirra mála sem upp hafa komið á Austurlandi. Ábyrgðin hefur til þessa verið óljós en myglusveppur getur valdið fólki jafnt heilsufars- sem fjárhagslegum skaða.

Lesa meira

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.