Illa farið með gott kjöt?
Nauðsynlegt er að koma hreindýrum, sem veidd eru, sem fyrst í kælt rými til að tryggja gæði kjötsins. Mynd, sem birtist af felldu dýri á Egilsstöðum í byrjun vikunnar, hefur vakið upp spurningar um meðferð á kjötinu.
Nauðsynlegt er að koma hreindýrum, sem veidd eru, sem fyrst í kælt rými til að tryggja gæði kjötsins. Mynd, sem birtist af felldu dýri á Egilsstöðum í byrjun vikunnar, hefur vakið upp spurningar um meðferð á kjötinu.
Vegagerðin varar við snjómuggu á Fjarðarheiði og Hellisheiði eystri og mögulega einnig efst á Oddsskarði í kvöld og í nótt en mikið kuldakast gengur yfir allt landið sem kemur hvað harðast niður á Austfirðingum.
Fyrsti fundur forsvarsmanna Alcoa og ríkisstjórnar Íslands um hugsanlegt álver í Reyðarfirði var haldinn sama dag og Norsk Hydro tilkynnti að það væri hætt við þátttöku í slíku verkefni. Æðstu stjórnendur Alcoa tóku strax þátt í viðræðunum.
Sveitarfélagið Fjarðabyggð hefur hvatt Íbúðalánasjóð til að setja fleiri íbúðir á leigu. Sjóðurinn hefur að einhverju leyti brugðist við þeim umleitunum en vill frekar selja húsnæði en leigja.
Ekki eru allir á eitt sáttir um þær hefðir sem víða tíðkast í framhaldsskólum landsins við busavígslur. Deilt er um hvort þær séu skemmtun eða andlegt ofbeldi og niðurlæging. Dæmi eru um að nemendur hafi heimtað harðari busanir þegar búið hafi verið að róa þær niður.
Ólöglegt er að fara til hreindýraveiða á fjórhjóli eða sækja á því fallna bráð. Mynd af hauslausu hreindýri á fjórhjóli sem lagt var á fjölförnu svæði á Egilsstöðum um helgina hefur fengið mikla athygli í fjölmiðlum.
Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, segir fyrirtækið taka virkan þátt í íslenskri samfélagsumræðu, sérstaklega þegar um er að ræða austfirsk hagsmunamál. Samgöngu- og heilbrigðismál hafa þar farið hæst.
Austurbrú stendur fyrir ráðstefnunni „Make it Happen” – sem er haldin í tilefni af 10 ára afmæli Menningarráðs Austurlands og til að fagna 10 ára menningarsamstarfi við Vesterålen í Noregi í lok september. Ráðstefnan er einnig lokaviðburður Evrópu-verkefnisins Creative Communities sem er unnið með samstarfsaðilum í Svíþjóð og Danmörku.
Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.