Veggjakrotara fóru hamförum utan á veggjum húsnæðis Þekkingarnets Austurlands á Egilsstöðum um síðustu helgi. Í krotinu koma fram kynþáttafordómar af svæsnasta tagi og blasir óhroðinn meðal annars við þeim útlendingum sem læra íslensku hjá Þekkingarnetinu. Þykjast menn vita hverjir voru þarna á ferð og er málið til rannsóknar hjá lögreglu.
Reyðarfjarðarkirkja er nú prýdd bleikum ljósum í tilefni af átaki Krabbameinsfélags um brjóstakrabbamein. Í októbermánuði verður vakin athygli á brjóstakrabbameini hér á landi eins og gert hefur verið síðan árið 2000, frætt um sjúkdóminn og konur hvattar til að nýta sér boð Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins um röntgenmyndatöku. Þetta er hluti af alþjóðlegu árveknisátaki, að frumkvæði Estée Lauder, en bleik slaufa er tákn átaksins.
Lið Fjarðabyggðar mætir Hveragerði í spurningakeppni Sjónvarps, Útsvari, í kvöld.Lið Fjarðabyggðar er skipað þeim Jóni Svani Jóhannssyni, Kjartani Braga Valgeirssyni og Pjetri St. Arasyni. Austurglugginn óskar liðinu velgengni í kvöld!
Í dag er Alþjóðadagur kennara haldinn hátíðlegur um allan heim. Að forgöngu UNESCO er 5. október sérstaklega helgaður kennurum og þennan dag nota þeir samtakamátt sinn til að tryggja að hugað sé að þörfum barna fyrir menntun í nútíð og framtíð. Um leið er 5. október tákn þess að við kunnum að meta mikilsvert framlag kennara til menntunar, framþróunar samfélaga og þroskunar einstaklinga. Yfirskrift dagsins í ár er þessi: Sköpum framtíð: Fjárfestum í kennurum án tafar.
Samtök Eiðavina hittast á Eiðum í dag til að halda aðalfund félagsins. Getur fyrrverandi Eiðafólk hist og rifjað í sameiningu upp liðna tíma og fræðst um framgang verkefnisins Sögustofa á Eiðum. Fundurinn hefst kl. 14 og eru allir velkomnir.
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 15%. Jafnframt var ákveðið að hækka verð á slægðri og óslægðri ýsu um 15%. Þá var verð á karfa hækkað um 10%. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag, 6. október 2009.
Lið Fjarðabyggðar sigraði Hvergerðinga í spurningakeppni Sjónvarps, Útsvari, í kvöld, með 73 stigum gegn 49. Liðið er skipað Jóni Svani Jóhannssyni, Kjartani Braga Valgeirssyni og Pjetri St. Arasyni.
Hópur Seyðfirðinga og Héraðsbúa gengur nú í fjórða sinn yfir Fjarðarheiði til að vekja athygli á óviðunandiástandi samgangna við Seyðisfjörð. Í því skyni er efnt til almennrar hópgöngu yfir Fjarðarheiði a.m.k. ársfjórðungslega þar til komin eru jarðgöng sem tengja Seyðfirðinga við önnur byggðalög. Gangan hófst í morgun kl. 9 og er gengið frá Seyðisfirði til Egilsstaða. Nú er norðaustanátt á heiðinni, slydda og um 11m/sek. Í dag er Haustroðahátíð á Seyðisfirði og fjölbreytt dagskrá í boði fyrir gesti og heimamenn.