Á milli tíu og tuttugu ný störf tækni- og verkfræðinga munu verða til við álver Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði vegna nýs samnings HRV Engineering og Alcoa. Samkvæmt samningnum mun HRV sinna víðtækri verkfræðiþjónustu og ráðgjöf fyrir álverið.
Helga Jónsdóttir, bæjarstýra í Fjarðabyggð, hefur verið tilnefnd í stjórn Kaupþings af Samfylkingunni. Helga, sem er lögfræðingur að mennt, var um tíma fulltrúi Íslands í stjórn Alþjóðabankans.
Í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi Fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna á Fljótsdalshéraði og Borgarfirði eru stjórnvöld
hvött til að standa við áform um samgöngubætur á Austurlandi.
Stjórn Hávarrs, félags ungra sjálfstæðismanna í Fjarðabyggð, segir
meirihluta bæjarráðs Fjarðabyggðar senda íbúum bæjarfélagsins kaldar
kveðjur með að hafa hafnað tillögu fulltrúa Sjálfstæðisflokks um lækkun
launa æðstu embættismanna bæjarins.
Það lítur út fyrir að BT á Egilsstöðum verði ekki upp á marga fiska í nánustu framtíð því óskað var eftir gjaldþrotaskiptum á BT verslunum ehf. í dag. Stjórnendur fyrirtækisins vona að hægt verði að koma BT aftur í rekstur. Ljóst virðist þó að verslanir fyrirtækisins verða lokaðar í það minnsta næstu dagana. Hjá félaginu starfa 50 manns.
Stjórnendur Malarvinnslunnar reyna nú allt sem hægt er til að forða fyrirtækinu frá gjaldþroti. Unnið er að því að selja einstakar deildir út úr fyrirtækinu og er þar um að ræða klæðningu, malbik, steypustöð, vélaverkstæði, einingaverksmiðju og útideild, sem snýr einkum að viðbyggingu Grunnskólans á Egilsstöðum. Hún er jafnframt stærsta einstaka verkefni Malarvinnslunnar nú. Starfsfólk fær greidd laun fyrir október en alls óvíst er um framhaldið.