Sögur óbyggðanna á Spotify
„Þetta er svona á pari við þær sögur sem við segjum fólki sem kemur hingað á setrið til okkar en mun ítarlegri frásagnir og vonandi nýtist þetta og skemmtir fólki sem áhuga hefur,“ segir Steingrímur Karlsson, hjá Óbyggðasetrinu í Fljótsdal.
Alltaf fjölgar þátttakendum í gönguvikunni Á fætur í Fjarðabyggð
„Þeim fjölgar ár frá ári sem taka þátt í þessu með okkur og þar bæði um heimamenn og aðkomufólk að ræða,“ segir Sævar Guðjónsson, einn skipuleggjandi gönguvikunnar Á fætur í Fjarðabyggð, sem nú er í fullum gangi.
Menningar og listahátíðin Innsævi í Fjarðabyggð hafin
„Það er okkar von að allir, háir sem lágir, finni eitthvað skemmtilegt við hæfi næstu vikurnar og fjölmenni á sem flesta viðburðina á hátíðinni,“ segir Jóhann Ágúst Jóhannsson, forstöðumaður Menningarstofu Fjarðabyggðar.
Bók um Tyrkjaránið á Austfjörðum 1627
Út er komin bókin „Enslaved: The Story of the Barbary Corsair Raid on East Iceland in 1627“ eða „Í ánauð - saga Tyrkjaránsins á Austurlandi,“ eftir Karl Smára Hreinsson og Adam Nichols. Hún er fyrsta heildstæða verkið um Tyrkjaránið á Austfjörðum.Fánar, fjallkonan og fallbyssur - Viðamikil 17. júní dagskrá í Múlaþingi og Fjarðabyggð
Þjóðhátíðardeginum verður fagnað með viðamikilli dagskrá bæði í Múlaþingi og Fjarðabyggð en hjá báðum sveitarfélögum hefur hluti dagskrárinnar verið færður innandyra sökum slæmrar veðurspár fyrir morgundaginn.
Eftirréttameistari býður til borðs á Nielsen
„Afi gamli vildi alltaf að ég yrði læknir eða lögfræðingur en mig langaði að læra einhverja iðn og hér er ég nú,“ segir Ólöf Ólafsdóttir, eftirréttameistari Íslands 2021, sem næstu þrjá dagana býður gestum og gangandi upp á dýrindis eftirrétti á veitingastaðnum Nielsen á Egilsstöðum.
„Allt í einu á ég verslun á Seyðisfirði“
„Við opnuðum í síðustu viku og viðtökurnar hafa verið ekkert minna en frábærar hingað til,“ segir Guðrún Tinna Thorlacius, sem ásamt fjölskyldu sinni hefur opnað gjafavöruverslunina Steinholt & Co í hinu reisulega og þekkta húsi Steinholti á Seyðisfirði.
Tuttugasta starfsár Tónlistarstundarinnar hefst í kvöld
„Ég hlakka til kvöldsins enda hefst þá hátíðin á nýjan leik þetta sumarið en hún hefur verið haldin allar götur frá árinu 2002 og meira að segja Covid gat ekki komið í veg fyrir að hún hefði verið haldin síðustu tvö árin,“ segir Torvald Gjelde, organisti, en hann hefur allan þann tíma haft veg og vanda af uppsetningu þessarar rammaustfirsku hátíðar.