Undanfarin ár hefur Amnesty International og Kirkjan á Héraði staðið
fyrir stuttri dagskrá í Egilsstaðakirkju á Alþjóðlega mannréttindadaginn
þann 10. desember. Svo verður einnig nú og hefst hún kl 17.30. Sigrún
Blöndal flytur stutta hugvekju og Kór Egilsstaðakirkju syngur.
Hin árvissa rithöfundalest æðir um Vopnafjörð, Hérað og Seyðisfjörð um
helgina en ferðin hefst á Vopnafirði í kvöld. Höfundarnir eru að þessu
sinni fjórir.
Hafnar eru útsendingar Stöðvar 1 um netið á slóðinni www.stod1.is og er
um samfellda opna dagskrá án endurgjalds um að ræða. Stöð 1 mun vera
fyrsta íslenska sjónvarpsstöðin sem sendir út samfellda ótruflaða
heildardagskrá í rauntíma um netið og er þessi dreifing á merki hennar
því kærkomin viðbót við núverandi dreifingu um örbylgju, adsl og
ljósleiðarakerfi Vodafone. Notendur netsins geta því notið dagskrár
Stöðvar 1 hvar sem þeir eru tengdir á landinu.
Lið sveitarfélagsins Fljótsdalshéraðs, sem náð hefur frábærum árangri í
spurningakeppninni Útsvari seinustu tvö ár, mætir Akranesi í kvöld.
Hrafnkell Lárusson, héraðsskjalavörður, hefur tekið sæti Stefáns Boga
Sveinssonar í liðinu.
Hugmyndir um að breyta frystihúsinu á Stöðvarfirði í sköpunarmiðstöð þar
sem saman kom íslenskir og erlendir listamenn voru kynntar á
borgarafundi fyrir skemmstu. Stöðin hefur sjálfbærni að leiðarljósi og gert er ráð fyrir að hún gangi fyrir eigin rafmagni.
Sveppabókin - Íslenskir sveppir og sveppafræði, eftir náttúrufræðingin
Helga Hallgrímsson á Egilsstöðum, var í gær tilnefnd til íslensku
bókmenntaverðlaunanna í flokki fræðirita. Fjórar aðrar bækur eru
tilnefndar í flokknum.
Hin árvissa Grýlugleði verður haldin á Skriðuklaustri sunnudaginn 27.
nóvember kl. 14.00. Von er á sagnaálfum og gaulálfum sem munu segja frá
og syngja um Grýlu og hyski hennar sem búið hefur um aldir í
Brandsöxlinni ofan við Víðivelli í Fljótsdal.
Fyrir stuttu kom út Náttúrumæraskrá Fljótsdalshéraðs, eftir Helga
Hallgrímsson, náttúrufræðing. Skráin er tæplega 160 blaðsíður að stærð
og er lýsing á um 600 stöðum og svæðum í sveitarfélögunum Fljótsdalshreppi og Fljótsdalshéraði, sem höfundur
telur sérstaklega athyglisverð og kallar náttúrumæri. Þeir sem áhuga
hafa geta fengið eintak af náttúrumæraskrá Helga á skrifstofum
sveitarfélagsins án endurgjalds.