Man aldrei eftir að við höfum verið sóttir upp á skíðasvæði
Sævar Guðjónsson, leiðsögumaður hjá Ferðaþjónustunni Mjóeyri, hefur staðið á skíðum í um fjörutíu ár. Hann segir fá svæði jafnast á við Ísland þar sem hægt er að skíða frá fjallatoppum niður að sjávarmáli.Blak: Þróttur Fjarðabyggð í 8-liða úrslitum Kjörísbikarsins um helgina
Bæði karla- og kvennalið Þróttar Fjarðabyggðar keppa í 8-liða úrslitum Kjörísbikarsins um helgina. Karlalið Þróttar Fjarðabyggðar mætir liði KA á útivelli. Kvennaliðið mætir Blakfélagi Hafnarfjarðar, liði úr neðri deild, einnig á útivelli.
Knattspyrna: KFA unnið fyrstu tvo leikina í Lengjubikarnum
Knattspyrnufélag Austfjarða hefur unnið tvo fyrstu leiki sína í Lengjubikarnum þetta árið. Karlalið Hattar/Hugins er komið með sigur en kvennalið Fjarðabyggðar/Hattar/Leiknis tapaði í fyrstu umferð.Blak: Kvennaliðið áfram í undanúrslit en karlarnir úr keppni
Tveir bikarleikir í blaki fóru fram um helgina þar sem lið Þróttar Fjarðabyggðar kepptu um sæti í undanúrslitum Kjörísbikarsins. Karlalið Þróttar keppti við KA og tapaði 3-1 og fer því ekki lengra í bikarkeppninni þetta árið. Kvennaliðið mætti liði Blakfélags Hafnarfjarðar, liði úr 2. deild, sem komst áfram í bikarnum. Þróttur vann öruggan sigur 0-3 og eru komnar áfram í undanúrslit bikarkeppninnar. Undanúrslitin og úrslitin fara fram á bikarhelgi Kjörísbikarsins 9.-12. Mars í Digranesi.
Blak: Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir leggur skóna á hilluna
Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir er ein mesta afrekskona Íslands í blaki. Hún er fædd og uppalin í Neskaupstað og Þróttur Nes eina íslenska liðið sem hún hefur spilað með. Eftir að hafa spilað blak í 20 ár víða um Evrópu hefur hún ákveðið að leggja skóna á hilluna.Blak: Tap á móti HK
Þróttur Fjarðabyggð mætti liði HK í gær í úrvalsdeild karla í blaki. Leikurinn fór fram á Digranesi og var mjög jafn þar sem liðin skiptust á stigum nær allan leikinn. Leikurinn endaði með 3-1 sigri HK.