Haustak í úrslit
Sveit Haustaks verður meðal tólf sveita sem keppa til úrslita á Íslandsmótinu í bridge. Fjörutíu sveitir tóku þátt í undankeppni mótsins um helgina en þar af voru þrjár austfirskar sveitir.
Erna féll úr leik
Fellbæingurinn Erna Friðriksdóttir féll í seinni ferðinni í stórsvigi á vetrarólympíuleikum fatlaðra í gær en leikarnir fara fram í Vancouver í Kanada. Erna hefur þar með lokið þátttöku sinni á leikunum.
Stefnir í hreinan úrslitaleik í blakinu
Þróttur Neskaupstað og HK mætast væntanlega í hreinum úrslitaleik í næstu viku um Íslandsmeistaratitil kvenna í blaki.
Annar leikur Þróttar í kvöld
Þróttur tekur í kvöld á móti nýkrýndum deildar- og bikarmeisturum HK í öðrum leik sínum í úrslitakeppni 1. deildar kvenna í blaki. Leikurinn hefst klukkan 19:30.
Höttur tapaði seinasta leiknum og Þróttur undanúrslitunum
Körfuknattleikslið Hattar tapaði lokaleik sínum í 1. deild karla fyrir Þór Þorlákshöfn. Kvennalið Þróttar í blaki féll úr leik í undanúrslitum.
Frækinn sigur Þróttar
Kvennalið Þróttar vann í fyrrakvöld 3-2 sigur á HK í stórkostlegum leik í úrslitakeppni 1. deildar kvenna í blaki í Neskaupstað. HK-ingar eru ríkjandi Íslands-, deildar- og bikarmeistarar.
Hjálmar skákmeistari Fljótsdalshéraðs
Hjálmar Jóelsson sigraði á Skákþingi Fljósdalshéraðs. Mótið fór fram að Brávöllum 7 á Egillstöðum, sex skákmenn tóku þátt í mótinu að þessu sinni.Erna kláraði báðar ferðar
Erna Friðriksdóttir, skíðakona úr Fellabæ, kláraði báðar ferðarnar í svigi kvenna á vetrarólympíuleikum fatlaðra sem fram fara í Vancouver í Kanada. Erna er fyrsti Íslendingurinn til að taka þátt í alpagreinum á vetrarólympíuleikum fatlaðra.