Logi Már í þriðja sæti Samfylkingar í NA
Logi Már Einarsson, arkitekt á Akureyri ætlar að bjóða sig fram í þriðja sæti í Norðausturkjördæmi í prófkjöri Samfylkingar.
Logi Már Einarsson, arkitekt á Akureyri ætlar að bjóða sig fram í þriðja sæti í Norðausturkjördæmi í prófkjöri Samfylkingar.
Aldrei hafa fleiri umsóknir verið um hreindýraveiðileyfi en nú, þrátt fyrir örðugt efnahagsástand. Umsóknarfrestur rann út á miðnætti 15. febrúar og höfðu þá borist 3.300 umsóknir. Í fyrra voru umsóknir rétt innan við 3.100 talsins.
Á Austurlandi eru frábærir útivistarmöguleikar og veðrið oftast gott. Hér eru frábær skíða- og brettasvæði í Oddsskarði og Stafdal og endalausir möguleikar fyrir skíðagöngu. Hægt að skiða í skóginum eða þeysa um snjóbreiður í vélsleðaferð. Ganga í síðdegissólinni sem gyllir snæviþakin fjöll og skóg eða fara fetið á hestbaki. Hið fræga ístölt verður á Egilsstaðavíkinni 21. febrúar.
Eftirfarandi framboð hafa borist í forval Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðausturkjördæmi, en framboðsfrestur er runninn út. Kosningarétt hafa allir félagsmenn í VGNA sem skráðir eru 23. febrúar 2009 en þá verður kjörskrá lokað.
Kjörfundur verður haldinn 28. febrúar 2009 en kjördæmisráð Norðausturkjördæmis mun annast kynningu á frambjóðendum með sérstöku kynningarefni sem og standa fyrir fundum.
Austurglugginn fæst á betri blaðsölustöðum.
Jónína Rós Guðmundsdóttir, framhalsskólakennari og formaður bæjarráðs Fljótsdalshéraðs, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 1. – 2. sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar.
Dregið verður úr innsendum umsóknum um hreindýraveiðileyfi sunnudaginn 22. febrúar kl. 17:00, í húsnæði Þekkingarnets Austurlands á Egilsstöðum. Til stendur að varpa niðurstöðunum beint á netið með sérstökum búnaði og verður sett slóð á vef Umhverfisstofnunar, www.ust.is og www.hreindyr.is í dag eða á morgun. Þá verður aðalfundur Félags leiðsögumanna með hreindýraveiðum haldinn á Hótel Héraði, Egilsstöðum, fyrr þennan sama dag kl. 13:00. Formaður FLH er Sævar Jónsson.
Þróttur Neskaupstað tryggði sér um helgina sæti í undanúrslitum bikarkeppni kvenna í blaki. Körfuknattleikslið Hattar tapaði fyrir Val.
Síðasta skráningardagur vegna Ístölt Austurland er á morgun, en að venju rennur skráningarfrestur endanlega út um tíuleytið annað kvöld. Ístölt Austurland fer fram næstkomandi laugardag 21. febrúar. Skráningar fara fram á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og hjá Gunnþórunni í síma 847-0116.
Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.