Víða skemmdir á vegum eftir rigningar helgarinnar
Skemmdir urðu á vegum í flestum sveitarfélögum á Austurlandi í miklu hlákuveðri síðasta föstudag. Vegagerðin vinnur að viðgerðum eftir því sem kostur er.GPS vísaði upp Oddsskarð
Lögreglan kom til bjargar ferðamönnum sem keyrt höfðu upp Oddsskarð eftir leiðbeiningum leiðsögutækis. Áramótin voru almennt róleg hjá lögreglunni á Austurlandi.Varað við úrhellisrigningu annað kvöld: Gæti raskað samgöngum
Veðurstofan varar við mikilli úrkomu á sunnanverðum Austfjörðum sem hefst á fimmtudagskvöld og stendur í rúman sólarhring. Hætta er á hlaup geti komið í ár og læki.Mikilvægt að stíga út fyrir landamörkin
„Þetta er ótrúlega spennandi, ég vissi alveg að þetta væri það, en ekki svona,“ segir Berglind Häsler, ferðaþjónustubóndi í Havarí á Karlsstöðum í Berufirði. Havarí er eitt tíu fyrirtækja sem tekur þátt í Startup Tourism í ár.
Grannaslagur fyrir opnum tjöldum í kvöld
„Það er vissulega mjög áhugavert að dragast á móti þeim,“ segir Jökull Logi Sigurbjarnarson, meðlimur liðs Verkmenntaskóla Austurlands í Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna. Skólinn mætir grönnum sínum í Menntaskólanum á Egilsstöðum í annarri umferð keppninnar í kvöld.„Þau vilja hvergi annars staðar vera“
„Nemendunum þykir þetta allt saman mjög merkilegt og þau stækkuðu talsvert við flutiniginn,“ segir Lísa Lotta Björnsdóttir, leikskólastjóri á Lyngholti á Reyðarfirði, en næstelsti árgangur skólans er nú fluttur í Félagslund, gamla félagsheimilið á staðnum.#metoo: Málefni sem hefur snert nánast hvert einasta mannsbarn í okkar samfélagi síðustu vikurnar
Sveitarfélagið Fjarðabyggð hyggst standa fyrir jafnréttis- og kynjafræðslu meðal starfsmanna sveitarfélagsins í ár. Þá verður myndaður starfshópur til að bregðast við kynferðislegri og áreitni í starfsumhverfi Fjarðabyggðar. Bæjarfulltrúar fagna aðgerðunum.Íbúum í Neskaupstað ráðlagt að sjóða neysluvatn: Úrhelli á föstudag talið rót mengunar
Íbúum í Neskaupstað var í morgun ráðlagt að sjóða neysluvatn eftir að fjöldi jarðvegsgerla reyndist yfir mörkum. Veitustjóri telur líklegt að vatnsbúskapurinn hafi raskast í úrhellisrigningum á föstudag.Blak: Tvö töp gegn KA
Karlalið Þróttar í blaki er áfram í fjórða sæti deildarinnar eftir tvo ósigra gegn toppliði KA í síðustu viku.„Við ætlum okkur í úrslit í ár“
Báðir framhaldsskólar fjórungsins komust áfram eftir fyrstu umferð Gettu betur, spurningakeppni framhandsskólanna. Dregið verður í aðra umferð á morgun.„Hef aldrei átt eins notalega og góða sængurlegu áður“
Fyrsta barnið sem fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað í ár var myndarlegur drengur sem kom í heiminn þann 3. janúar. Foreldrar hans eru þau Erla Björk Jónsdóttir og Haukur Dór Kjartansson, búsett á Reyðarfirði.