Rælni að ég stoppaði til að athuga hvað væri að gerast
Bílstjóri flutningsbíls sem brann á veginum yfir Oddsskarð segir bílinn hafa orðið alelda á örskammri stundu. Það hafi verið heppni að hann stöðvaði bílinn til að kanna hvað væri að frekar en halda áfram.
Ríflega 80 milljóna hagnaður hjá Sparisjóði Austurlands
Hagnaður af rekstri Sparisjóðs Austurlands fyrir skatta og lögbundið framlag til samfélagslegra verkefna á síðasta ári nam 82 milljónum króna. Útlán jukust um hálfan milljarð.
Gert við á morgun eftir hvassviðrið
Vegagerðin áformar að gera við vegi á Héraði sem skemmdust í óveðrinu í gær á morgun. Björgunarsveitir hjálpuðu fólki í vanda á Breiðdalsheiði og nóg var að gera hjá austfirskum veitingastöðum sem þurftu að sinna ferðamönnum sem voru strand.
Fjarðabyggð ósátt við viðhaldið á veginum yfir Oddsskarð
Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur lýst yfir óánægju sinni með viðhald Vegagerðarinnar á veginum yfir Oddsskarð sem stöðugt sígur. Honum er haldið í horfinu með malarofaníburði og til stendur að reyna að klæða kaflana í byrjun sumars.Hótelbyggingu hafnað á Stöðvarfirði
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd Fjarðabyggðar hefur hafnað hugmyndum um að breyta Salthúsinu á Stöðvarfirði í gistihús. Nefndin telur stækkun hússins ekki samræmast núgildandi skipulagi.
Birgir ráðinn skólastjóri á Eskifirði
Birgir Jónsson, upplýsingafulltrúi Fjarðabyggðar, hefur verið ráðinn skólastjóri Eskifjarðarskóla frá og með næsta skólaári. Hilmar Sigurjónsson lætur þá af störfum eftir að hafa stýrt skólanum frá árinu 1996.
Ellefu starfsmerki og eitt silfurmerki afhent á UÍA þinginu
Alls voru ellefu einstaklingar sæmdir starfsmerkjum á 67. þingi UÍA sem haldið var á Reyðarfirði um helgina, átta þeirra hlutu starfsmerki UÍA og þrír starfsmerki UMFÍ.Listahátíð og Menningarmessa meðal nýrra verkefna í Fjarðabyggð
„Listahátíð Fjarðabyggðar verður haldin á tveggja ára fresti, sem og Menningarmessa. Menningar- og, komið verður á fót fræði- og listamannadvöl sem og menningartengdu fræðslustarfi í skólum sveitarfélagsins og vinnuskóla Fjarðabyggðar svo eitthvað sé nefnt,“ segir Dýrunn Pála Skaftadóttir, formaður Menningarnefndar Fjarðabyggðar, en með samþykkt nýrrar menningarstefnu Fjarðabyggðar og væntanlegrar Menningarstofu mun aðkoma sveitarfélagsins að stuðningi við hvers kyns menningarstarfsemi stóreflast.