Tilraunaverkefni með aukna ábyrgð hjúkrunarfræðinga gengur vel
Tilraunaverkefni sem hrint var af stað á heilsugæslunni á Egilsstöðum eftir áramótin með aukna ábyrgð hjúkrunarfræðinga hefur gefist vel. Þeir sem hafa samband við heilsugæsluna fá fyrst svar frá hjúkrunarfræðingi sem metur hvort þörf sé á aðstoð læknis eða getur leyst málin.
Hreindýraveiðar ganga hægt en dýrin eru væn
Búið er að fella tæplega 100 hreindýr af þeim 1300 sem heimilt er að veiða í ár. Dýrin virðast væn eftir góða tíð í vor.
Löggæslukostnaður: Neistaflug rukkað um kostnað sem þau voru ekki sátt við
Allur gangur virðist vera á því hversu háar upphæðir skipuleggjendur hátíðarhalda á Austurlandi hafa þurft að greiða í löggæslukostnað í sumar.Smáhýsin á Mjóeyri meðal þeirra bestu á Norðurlöndunum
Ferðaþjónustan Mjóeyri kemst á topplista breska blaðsins The Guardian þar sem farið er yfir 20 bestu smáhýsin til að gista í á ferð um Norðurlöndin. Mjóeyri er einn fimm íslenskra staða á listanum.
Ákærður fyrir að vigta ekki fiskinn í soðið
Lögreglustjórinn á Austurlandi hefur ákært skipstjóra á smábát fyrir að landa um hálfu tonni af óslægðri ýsu framhjá vigt. Hann ætlaði fiskinn handa sér og áhöfn sinni í soðið.
Mjög róleg verslunarmannahelgi á Austurland
Lögreglumenn segjast varla muna eftir rólegri verslunarmannahelgi á Austurlandi þó mikil umferð hafi verið í fjórðungnum.Íbúar á Djúpavogi hvattir til að sjóða neysluvatn áfram næstu daga
Íbúar á Djúpavogi fengu þau tilmæli á laugardag um að sjóða neysluvatn og þurfa að gera það áfram næstu daga. Beðið er eftir varahlutum í hreinsibúnað vatnsveitunnar erlendis frá.
Jarðfræðingar hefja gulleit á Vopnafirði: Algjörar frumrannsóknir
Fjórir jarðfræðingar eru væntanlegir til Vopnafjarðar um helgina til að kanna jarðfræði svæðisins fyrir frekar gullleit og jafnvel gullvinnslu. Framkvæmdastjóri Iceland Resources segir um algjöra frumrannsókn að ræða sem óvíst sé hver stefni í framhaldinu.
Löglegt en siðlaust að nýta ákvæði í skattalöggjöf til að lágmarka skattgreiðslur í hverju landi
Sérfræðingur í skattamálum hjá KPMG segir að nýtt viðhorf til skattasiðferðis fyrirtækja muni breyta til frekari breytingar á löggjöf á næstu árum. Neytendur og fjölmiðlar muni veita stjórnmálamönnum og fyrirtækjum aðhald.
Fangelsisdómur og ævilöng svipting fyrir ölvunarakstur
Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt 23 ára gamlan karlmann í fangelsi og til ævilangrar sviptingar ökuréttinda fyrir ölvunarakstur. Lögregla hafði afskipti af manninum undir Grænafelli í mars.