Unnar Geir nýr forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs
Unnar Geir Unnarsson, leikari, hefur verið ráðinn forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs. Þrettán sóttu um stöðuna en sex drógu umsókn sína til baka.Risastór pollur stöðvaði ferðalanga á Öxi – Myndband
Ferðalangar á leið yfir Öxi snéru við eftir að hafa ekið fram á risastóran poll þegar komið var upp á háheiðina Berufjarðarmegin frá í kvöld. Leysingavatn hafði safnast saman á veginum sem þó var merktur greiðfær.Maður slasaðist á hendi er hanski hans festist í víravélinni
Starfsmaður Fjarðaáls, sem var að vinna við víravélina í steypuskálanum, slasaðist á hendi í síðustu viku er hanski hans festist í hjóli þannig að höndin togaðist með hjólinu og skorðaðist föst.Ísfisktogarar fiska vel
Ísfisktogararnir Bjartur NK og Gullver NS hafa fiskað vel að undanförnu og hafa þeir komið með góðan fisk að landi sem hentar vel til vinnslu.Skólahald á Stöðvarfirði og Fáskrúðsfirði sameinað næsta haust?
Bæjarráð Fjarðabyggðar leggur til að skólahald á Stöðvarfirði og Fáskrúðsfirði verði sameinað frá og með næsta hausti. Starfsstöðvar verði á báðum stöðunum.Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins til Seyðisfjarðar
Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins, hið þýska MS Amadea, lagðist að bryggju á Seyðisfirði í gærmorgun. Skemmtiferðaskipakomur hafa aldrei verið tíðari til Austurlands en í ár.Seyðfirskur listamaður veldur uppnámi í Feneyjum og meðal íslenskra álitsgjafa
Óhætt er að segja að seyðfirski listamaðurinn Christoph Jules Büchel, fulltrúi Íslendinga á Feneyjatvíæringnum í ár, hafi valdið töluverðu uppnámi með verki sínu „Moskan". Lögreglan í Feneyjum hefur lýst henni sem öryggisógn og íslenskir álitsgjafar hafa margir lýst hneykslun sinni á verkinu og að Seyðfirðingurinn hafi verið útnefndur fulltrúi Íslendinga.Kannabistyppi fannst á Seyðisfirði
Kannabisfylltur gervilimur fannst á bryggjunni á Seyðisfirði í morgun, eftir að tollafgreiðslu úr farþegaferjunni Norrænu var lokið. Starfsmenn á bryggjunni veittu gervilimnum athygli og fóru með hann inn á borð til tollayfirvalda. Þetta kom fyrst fram á vef RÚV.
Í samtali við Austurfrétt sagði Árni Elísson, tollvörður á Seyðisfirði, að starfmenn hafnarinnar hefðu skemmt sér vel yfir þessum fundi og afhent gerviliminn með bros á vör. Fljótlega hafi þó fíkniefnahundur tollgæslunnar sýnt limnum mikinn áhuga og við nánari skoðun hafi komið í ljós að inni í limnum voru falin 8 grömm af kannabisefnum.
Grunur leikur á að limnum hafi verið hent út úr bifreið áður en komið var að tollaeftirliti og telur Árni að þeir sem þarna voru að verki hafi ekki þorað að fara með efnin í gegnum tollinn.
Gervilimurinn, sem er að sögn Árna ekki rafknúinn heldur handknúinn, hefur verið færður lögreglunni á Eskifirði til nánari rannsóknar.
Með ferjunni í morgun komu um 600 farþegar og níutíu farartæki. Tollafgreiðsla gekk að öðru leyti ágætlega fyrir sig. Þó er alltaf eitthvað um að matvæli og áfengi finnist í farangri farþega, sem gera sér ef til vill ekki grein fyrir því að hingað til lands má ekki flytja þýskar pylsur.