Norski arkitektinn Erik Rönning Andersen bar sigur úr býtum í hugmyndasamkeppni um bætta aðstöðu fyrir ferðafólk í Stórurð og næsta nágrenni Dyrfjalla. Hann segir útlínur fjallgarðsins hafa veitt honum innblástur við hönnunina.
Fulltrúar minnihlutans í bæjarstjórn Fljótsdalshérað hafa áhyggjur af forgangsröðun í útgjöldum sveitarfélagsins í ljósi kaupa þess á reiðhöllinni á Iðavöllum á rúmar tuttugu milljónir fyrir skemmstu. Bæði þeir og fulltrúar úr meirihluta hafa áhyggjur af fjármögnun reksturs hallarinnar til framtíðarinnar. Forsvarsmenn meirihlutans saka ríkið um að hafa svikið loforð um stuðning við höllina og að rétt sé að styðja við starf hestamanna eins og annað íþróttastarf.
Vopnfirðingar fögnuðu því í dag að fyrsti farmur íslensku síldarinnar á þessari vertíð kom að bryggju. Ingunn AK var fyrsta skipið úr flota HB Granda til að leita á miðin en Lundey NS hóf einnig veiðar í gær.
Menningarsamningur Austurlands er sá menningarsamningur landshluta sem mestum árangri skilar. Samningurinn hér er elstur og kemur það Austfirðingum til góða. Austurland fær samt talsvert minna fé til menningarmála frá ríkinu heldur en aðrir landshlutar.
Dagana 5. – 6. nóvember nk. stendur Austurbrú fyrir atvinnumálaráðstefnu undir yfirskriftinni „Auðlindin Austurland“ á Hóteli Hallormsstað. Boðið verður upp á fjölda fyrirlestra, málstofa og tengslatorg. Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðarráðherra mun setja ráðstefnuna en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra mun einnig flytja erindi um tækifæri á Norðurslóðum.
Austurfrétt hefur opnað undirvefinn Atvinnutorg Austurlands. Á síðunni geta atvinnurekendur komið atvinnuauglýsingum á framfæri og atvinnuleitendur geta skráð sig á póstlista til að fylgjast með nýjum störfum.
Héraðsdómur Austurlands dæmdi í dag 24 ára gamlan karlmann í fimmtán mánaða fangelsi, þar af þrjá mánuði óskilorðsbundna, fyrir samræði við stúlku sem var tíu árum yngri en hann.
Um næstu helgi, 2. – 3. nóvember er boðið til íbúaþings í Breiðdalshreppi. Þingið tengist verkefni Byggðastofnunar í svokölluðum „Brothættum byggðum“, þar sem áherslan er á samstarf íbúa og stofnana við að leita lausna til að efla byggð.
Innanríkisráðherra, Hanna Birna Kristjánsdóttir, opnaði á miðvikudag formlega nýja vegtengingu við Vopnafjörð. Um er að ræða tæplega 60 km vegagerð sem tengir Vopnafjörð við hringveginn um Norðausturveg. Sveitarstjórinn segir nýja veginn mikinn feng fyrir Vopnfirðinga.
Venjan er sú að í kjördæmavikum Alþingis fari þingmenn heim í sín kjördæmi, ferðist um, hitti fólk og taki púlsinn á stöðunni. Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður, fór þó öfuga leið og heimsótti Austurland.
Embla Eir Oddsdóttir, forstöðumaður Norðurslóðanets Íslands, varar menn við of mikill bjartsýni í tengslum við hugsanlegar siglingar fragtskipa um norðurslóðir. Þeim fylgir áhætta, bæði viðskiptalega og umhverfislega. Þá sé mikilvægt að gleyma ekki öðrum tækifærum á meðan beðið sé eftir að þær verði að veruleika.