Áform eru uppi að taka upp tíu þátta spennuþáttaröð á Seyðisfirði í leikstjórn Baltasars Kormáks í haust. Þættirnir voru kynntir fyrir erlendum sjónvarpsstöðvum á kaupstefnu í Cannes í síðustu viku.
Nemendur í áfanga í jarðfræði við Verkmenntaskóla Austurlands heimsóttu í gær Fannardalshluta nýrra Norðfjarðarganga og litaðist þar um. Farið var inn að stafni og skoðaðar aðstæður meðan unnið var að borun næstu sprengifæru, ríflega 240 m inni í fjallinu.
Emiliana Torrini snýr aftur á heimaslóðir á Borgarfirði eystri á Bræðslunni sem haldinn verður í tíunda skiptið í sumar en Emilíana kom fram á fyrstu tveimur Bræðslunum. Austfirska sveitin SúEllen verður meðal þeirra sex atriða sem í boði verða á hátíðinni í ár.
Ásgeir Arngrímsson, bóndi á Brekkubæ í Borgarfirði eystri, hitti leikmenn þýska knattspyrnuveldisins Bayern München á flugvellinum í Manchester í síðustu viku. Ásgeir segir þá hafa verið hina almennilegustu og fékk mynd af sér með einum af lykilmönnunum, Bastian Schweinsteiger.
Anna Margrét Sigurðardóttir úr Neskaupstað var á mánudag kjörinn formaður samtakanna Heimilis og skóla. Hún er fyrsti formaður samtakanna af landsbyggðinni en hún hefur setið í stjórn þeirra undanfarin fjögur ár.
Búa verður einkareknum landshlutamiðlum raunhæft rekstrarform því þeir skipta máli fyrir umræðuna. Kröfur fjölmiðlaneytenda hafa breyst og því dugir ekki að biðja stöðugt um það sem einu sinni var.
Menningarfélag Héraðsbúa stendur fyrir menningarviku í Valaskjálf á Egilsstöðum sem hefst í dag. Félagið var nýverið endurvakið og segir talsmaður þess markmiðið að efla hvers konar menningarstarf á svæðinu.
Ritstjóri Landans telur það ekki efla helst starfsemi Ríkisútvarpsins á landsbyggðinni að hefja á ný reglubundnar svæðisútvarpsins. Gríðarlegur kostnaður yrði við að koma þeim aftur í gang. Hann segist hafa byrjað að starfa fyrir RÚV því honum hafi þótt skorta á þjónustuna við Vesturland.
Sagnfræðingurinn Hrafnkell Lárusson dregur í efa að sá sparnaður hafi náðst sem stefnt var að þegar útsendingum svæðisútvarpa Ríkisútvarpsins var hætt í ársbyrjun 2010. Hann segir stefnu RÚV undanfarin ár hafa verið í þveröfuga átt við þá dreifðu starfsemi sem haldið sé uppi hjá norska ríkisútvarpinu (NRK).