Flóð í Breiðdalsá
Mikið hefur rignt í Breiðdalsá og segjast leiðsögumenn veiðiþjónustunnar Strengja ekki muna eftir öðru eins.
Mikið hefur rignt í Breiðdalsá og segjast leiðsögumenn veiðiþjónustunnar Strengja ekki muna eftir öðru eins.
"Þegar flugvöllurinn á Egilsstöðum var endurbyggður, voru uppi áform um að hann yrði 2700 metrar, en í fyrsta áfanga var hann byggður í 2000 metra. Hefði settum áformum verið fylgt, eru líkur á að þessi atburður hefði ekki orðið." Þetta segir Benedikt Warén starfsmaður í flugturninum á Egilsstöðum á bloggsíðu sinni um flugslysið við Egilsstðaflugvöll í gærkvöldi.
Grunnskólabörn á Stöðvarfirði tóku vel á móti glæsilegum fornbílunum í gær sem taka þátt í góðaksturkeppni breska bílaklúbbsins HERO. Bílarnir komu síðar um daginn meðal annars við hjá Alcoa á Reyðarfirði og í Shell á Egilsstöðum. Fornbílarnir og gamaldags klæddir bílstjórarnir vöktu að sjálfsögðu verskuldaða athygli hvar sem þeir komu.
Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt karlmann á þrítugsaldri í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás.
Lítil eins hreyfils flugvél brotlenti á Egilsstaðatúni um klukkan ellefu í kvöld. Einn erlendur flugmaður var í vélinni. Hann slasaðist ekki alvarlega en fór í athugun á Heilsugæslustöðinni á Egilsstöðum. Vélin var að koma frá Grænlandi.
Ekið var á 11 ára gamlan dreng í Fellabæ á fimmta tímanum í dag. Drengurinn var á reiðhjóli. Hann er ekki talinn alvarlega slasaður en var þó fluttur með sjúkraflugi til Akureyrar. Þar mun hann gangast undir ýtarlega rannsókn. Þetta kom fram í svæðisfréttum RÚV í dag.
Í kvöld klukkan 18:00 taka Fjarðabyggaðarmenn á móti Selfyssingum í 1. deild karla í knattspyrnu. Fjarðabyggðarliðið þarf á stigi að hald í botnbarráttunni, meðan Selfyssingar verða að vinna til að eiga möguleika á að komast í úrvalsdeildina.
Ben Hill frá Nýja Sjálandi sem spilaði með Hetti í körfunni á síðasta tímabili er mættur aftur til Egilsstaða. Hann segist ætla að spila með Hattarliðinu í vetur, en um tíma leit út fyrir að hann spilaði með Njarðvíkingum í vetur.
Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.