„Síldarvinnslan, og Loðnuvinnslan, eru fyrirtæki sem er umhugað um heilsu starfsmanna sinna,“ segir Berglind Lilja Guðlaugsdóttir, næringarfræðingur, sem upp á síðkastið hefur ausið úr viskubrunni sínum hjá stórum fyrirtækjum hér austanlands.
„Í rauninni er náttúrufræðikennsla í skólum landsins mjög lítil. Við teljum okkur vera náttúruþjóð en svo horfum við á Bretland, Skandinavía og Kanada sem eru öll miklu framar í slíku,“ segir Steingrímur Karlsson hjá Óbyggðasetrinu í Fljótsdals.
„Það er svo margt sem hefur staðið upp úr hingað til en til dæmis skrúðgangan sem markaði upphaf Vinavikunnar og svo var sundlaugarpartíið frábært svo fátt sé nefnt,“ segir Ásdís Fjóla Víglundsdóttir úr æskulýðsfélagi Hofsprestakalls -Kýros.
„Tilefnið er ljótt, borgarastríð sem geysar og konur eru að rífa af sér slæðurnar og klippa hár sitt á almannafæri,“ segir Þura Gæjadóttir, sem ásamt fleirum stendur fyrir stuðningsbingói á Tehúsinu á Egilsstöðum í kvöld klukkan 19:30.
„Það væri frábært að ná 400 manns á staðinn á laugardaginn og dagskráin ætti að falla í kramið hjá öllum ekta rokkunnendum enda alvöru rokkveisla með topp tónlistarfólki,“ segir Bjarni Þór Haraldsson, skipuleggjandi 70´s rokkveislu í Valaskjálf en allur ágóði af þeim tónleikum renna beint til styrktar geðheilbrigðismálum á Austurlandi.
„Hér í fjöllunum eru fullt af sögum og ég rakst á þessa sögu um þessa stráka þar sem einn var hálshöggvinn á Eskifirði 1786,“ segir Ásgeir Hvítaskáld, hvers skáldsaga Morðið í Naphorni, hefur litið dagsins ljós.
„Það voru svo glimrandi góðar undirtektir að við þurftum að hafa okkur öll við að bæta við stólum í salnum eins og hægt var og staðurinn var alveg pakkaður af foreldrum og börnum,“ segir Jóhann Ágúst Jóhannsson, forstöðumaður Menningarstofu Fjarðabyggðar.
„Það er ekkert að hægt að kvarta þegar börnin hafa svona gaman af því að kynnast öryggi og forvörnum,“ segir Anna Birna Einarsdóttir, skólastjóri Fellaskóla í Fellabæ.