Beituskúrinn í Neskaupstað fær drjúga andlitslyftingu
Hinn þekkti samkomustaður Beituskúrinn í Neskaupstað er að taka miklum breytingum til hins betra og það starf þegar komið vel á veg. Í sumar geta gestir notið stærra og fallegra útisvæðis við staðinn auk þess sem veitingahúsið sjálft fær upplyftingu. Nýja útlitið er hannað af heimamanninum Ólafíu Zoëga.
Marína Ósk og Ragnar Ólafsson á ferð um Austfirði
Söngvaskáldin Marína Ósk og Ragnar Ólafsson verða næstu daga á Austfjörðum en þau eru á tónleikaferð um landið. Þau koma úr ólíkum áttum, Marína Ósk úr djassi en Ragnar úr rokki.Leikskólabörn á Austurlandi syngja til heiðurs Prins Póló á sama tíma í dag
Tveir allsérstakir viðburðir eiga sér stað í dag og á morgun þegar leikskólabörn í flestum austfirskum leikskólum munu saman heiðra minningu tónlistarmannsins Prins Póló með söng og skemmtun.
Heltekinn af veiðiþrá
Boði Stefánsson hefur verið meindýraeyðir á Austurlandi í rúmlega 30 ár. Hann segir eftirspurn eftir þjónustu sinni hafa aukist, fyrst með sólpöllum og síðan aukinni vitund.Félagar í Oddfellow styrktu tækjakaup um 25 milljónir króna
Oddfellow-stúkurnar á Austurlandi, Björk og Hrafnkell Freysgoði gáfu nýverið 25 milljónir króna til tækjakaupa til Slökkviliðs Múlaþings, Heilbrigðisstofnunar Austurlands og Egilsstaðakirkju úr styrktar- og líknarsjóði Oddwellow á Íslandi.Yfir 40 viðburðir á Hammond hátíð ársins á Djúpavogi
Ekkert skal fullyrt enda enginn tekið það sérstaklega saman en góðar líkur eru á að Hammondhátíð Djúpavogs 2024 verði stærsta og fjölbreyttasta hátíðin nokkru sinni. Hún hefst óformlega á morgun þó aðaldagskráin sé um komandi helgi.
Sinfóníuhljómsveit Austurlands frumflytur nýtt verk eftir Charles Ross
Sinfóníuhljómsveit Austurlands frumflytur á sunnudag nýtt tónverk -forStargazer- eftir dr. Charles Ross í Tónlistarmiðstöð Austurlands á Eskifirði. Hefð er að myndast fyrir því að sveitin fái austfirsk tónskáld til að semja sérstaklega fyrir sig verk.Salmond matarveislan áfram hluti af Hammond hátíð Djúpavogs
Margir á Djúpvogi eru þegar farnir að telja niður dagana í næstu Hammond-hátíð þorpsins sem hefst í næstu viku. Formleg dagskrá hátíðarinnar sneisafull af forvitnilegum viðburðum en ekki síður eykst sífellt fjöldi svokallaðra utandagskrárviðburða kringum hátíðina sjálfa. Einn slíkur er Salmond veislan.