


„Forsetinn getur stuðlað að við stefnum öll í sömu átt“
Guðni Th. Jóhannesson, sem býður sig fram til endurkjörs sem forseti Íslands, hefur komið víða við á ferð sinni um Austfirði í dag. Hann segir kjósendum efst í huga hvernig stuðlað sé að öflugu samfélagi um allt land.
„Einblíndi á hvað ég væri heppin“
Pálína Margeirsdóttir á Reyðarfirði er meðal þeirra sem taka þátt í stuðningsneti Krabbameinsfélags Íslands og Krafts sem miðar að því að styðja krabbameinssjúklinga og aðstandendur á jafningjagrundvelli. Pálína þekkir sjúkdóminn vel af eigin raun, báðir foreldrar hennar létust úr krabbameini en hún sjálf hafði betur þegar hún greindist árið 2016.Gaf vel til viskíveiða
Það var heldur óvanalegur fengurinn sem Hreinn Elí Davíðsson náði að landi þar sem hann var að dorga við eina af bryggjunum á Seyðisfirði. Á enda línunnar var óátekin viskíflaska sem greinilega hafði verið lengi í sjó.
Hæ hó, jibbí jei - Hvað er um að vera 17. júní?
Formlegum og hefðbundnum hátíðahöldum í tilefni þjóðhátíðardagsins 17. júní hefur víðast hvar verið aflýst. Það eru þrátt fyrir það ýmsir viðburðir í dag, víða um Austurland.

Þurfti að standa á kassa til að ná upp á roðflettivélina
Sigurjón Arason, yfirverkfræðingur hjá Matís og prófessor við Háskóla Íslands, hefur á starfsævi sinni komið að verkefnum sem aukið hafa verðmæti íslenskra sjávarafurða um milljarða króna. Sigurjón var ekki hár í loftinu þegar hann byrjaði að vinna í fiski hjá Kaupfélaginu Fram í Neskaupstað.
Sigurborg Einarsdóttir sæmd fálkaorðunni
Sigurborg Ingunn Einarsdóttir, Eskifirði, var í meðal þeirra fjórtán Íslendinga sem forseti Íslands sæmdi heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu í gær. Sigurborg fékk riddarakrossinn fyrir framlag til heilbrigðisþjónustu í heimabyggð.
Helgin: Kastmót á Vilhjálmsvelli, knattspyrna og myndlist
Íþróttastarf er hægt og rólega að færast í eðlilegt horf hér á Austurlandi líkt og annarsstaðar á landinu. Auk þess sem leikið verður í bikarkeppni KSÍ í knattspyrnu um helgina verður boðið upp á skemmtilegt mót á Vilhjálmsvelli þar sem spjótkastarar í fremstu röð, sem eiga það sameiginlegt að æfa undir handleiðslu Einars Vilhjálmssonar, reyna við persónuleg met auk þess sem keppt verður í kúluvarpi.