Videó- og kvikmyndahátíðin www.700.isHreindýraland verður haldin í fjórða sinn á Fljótsdalshéraði og nágrenni 21. – 28.mars næstkomandi. Þessi tilrauna-kvikmyndalistahátíð verður haldin með nýju sniði að þessu sinni, þar sem ákveðið var að nú skyldi sjónum beint að videó-innsetningum. Því munu 7 listamenn, eða pör, vinna slíkar innsetningar í Sláturhúsið á Egilsstöðum, en einnig hafa verið valin 4 prógrömm frá gestasýningastjórum sem verða sýnd í nágrenninu meðan hátíðin stendur; á Eiðum, í Skaftfelli á Seyðisfirði, á Skriðuklaustri og í Þekkingarsetri Austurlands á Egilsstöðum.
Iðnþing Samtaka iðnaðarins stendur nú yfir á Grand hótel. Rétt í þessu var tilkynnt um niðurstöðu úr kjöri til stjórnar og ráðgjafaráðs SI, og var kosningaþátttaka 74,07%. Helgi Magnússon var kjörinn formaður með yfir 92% atkvæða. Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi var kjörinn nýr í stjórn SI og Einar Birgir Kristjánsson hjá Tandrabergi ehf. og Magnús Hilmar Helgason hjá Launafli í ráðgjafaráð SI.
Atvinnumálaþing verður haldið föstudaginn 6. mars kl. 14.00 - 17.00, í Valaskjálf, Egilsstöðum. Á fundinum flytja framsögur formaður atvinnumálanefndar Fljótsdalshéraðs og fulltrúar atvinnulífsins í sveitarfélaginu. Atvinnurekendur og íbúar sveitarfélagsins eru hvattir til að mæta og taka þátt í mikilvægri umræðu um atvinnulífið.
Á þriðjudag opnaði formlega nýtt námsver Þekkingarnets Austurlands á Reyðarfirði. Er það í húsi AFLs starfsgreinafélags að Búðareyri 1, í byggingu sem nú er byrjað að kalla ,,fróðleiksmolann,“ og má segja það nafn með rentu. Námsverið tók til starfa í janúarlok. Starfsemi ÞNA í húsinu verður mjög fjölbreytt.
Bilun kom upp í radíósambandi á vegum Mílu á Gagnheiði á Austurlandi. Þetta veldur því að Mjóifjörður er sambandslaus. Viðgerð er ekki hafin, sökum veðurs og færðar, samkvæmt upplýsingum frá Mílu.
Út er komin ný skýrsla um vélvædda grisjun á Íslandi eftir þá Christoph Wöll og Loft Jónsson í samstarfi við PELLETime. Þar sem skógar á Íslandi eru enn ungir hefur ekki verið eins mikil þörf á grisjun og er í skógum víða annars staðar. Ljóst er hins vegar að meira verður grisjað á næstu árum og áratugum en gert hefur verið áður og því er full ástæða til að skoða alla nýja tækni sem möguleiki er á að nýta við grisjun.
Að gefnu tilefni vill Landsvirkjun benda þeim sem hyggja á ferðir inn á Snæfellsöræfi á að hættulegt er að fara út á ísinn á Hálslóni og að fólki er ráðið frá því að reyna að fara yfir Kárahnjúkastíflu.Þar er fannfergi mikið og hætta á snjóflóðum og hruni úr Kárahnjúk. Vegur úr Fljótsdal að Kárahnjúkum er lokaður og verður ekki ruddur fyrr en í vor þegar verktakar hefja lokafrágang í nágrenni stíflanna.
Nokkrar ábendingar hafa komið inn á borð starfsfólks Náttúrustofu Austurlands um að haförn hafi sést við snjóflóðavarnargarðana í Neskaupstað síðastliðna helgi og einhverjar myndir náðust af fuglinum.
Kristín Ágústsdóttir, starfsmaður NA, fór af stað en fuglinn var þá á bak og burt. Eftir að hafa skoðað myndir sem náðust af fuglinum kom í ljós að örninn var nokkuð fálkalegur ásýndar og staðfesti Skarphéðinn G. Þórisson hjá NA að þarna var á ferðinni fálki.