Silkitoppur heiðra bæjarbúa með nærveru sinni
Silkitoppur eru virðulegir og fallegir fuglar og hafa á allra síðustu vikum verið áberandi í þéttbýlinu á Egilsstöðum og í Fellabæ. Þær eru furðu lítið styggar og flögra um í hópum. Sést hefur til allt að fimmtíu fugla hóps og í dag hélt stór hópur til við Söluskála Kaupfélags Héraðsbúa.
Þróttur Nes blakar til sigurs
Í dag fór fram spennandi blakleikur í íþróttahúsinu í Neskaupstað þegar Þróttur Neskaupstað og Þróttur Reykjavík mættust að nýju, en liðin léku líka í gær. Leikur dagsins fór 3 - 1 fyrir heimaliðinu, 25 - 22, 18 - 25, 25 - 18, 28 - 26.
Lesið úr Biblíunni sleitulaust í alla nótt
Um tuttugu ungmenni á Fljótsdalshéraði hófu maraþonlestur úr Biblíunni um kl. 20 í kvöld og ætla að lesa sleitulaust uns bjarmar af morgni, eða til kl. 08 í fyrramálið. Þau eru í kristilega æskulýðshópnum Bíbí og söfnuðu áheitum fyrir lesturinn, en ætlunin er að verja því fé sem safnast til að hitta jafnaldra í æskulýðsstarfi á Vopnafirði.
Þórbergssetur í Suðursveit hlýtur nýsköpunarverðlaun
Þórbergssetur, á Hala í Suðursveit, fékk nýverið Nýsköpunarverðlaun Samtaka ferðaþjónustunnar fyrir öfluga uppbyggingu menningartengdrar ferðaþjónustu.
Vélar Kárahnjúkavirkjunar munu skila 13% meiri raforku en uppsett afl hennar gerði ráð fyrir
Kárahnjúkavirkjun mun eftir áramót geta skilað allt að 780MW afls, eða um 90MW meiru en hún var byggð til að afkasta. Fyrir nokkru kom í ljós að vatnshjól í sex hverflum virkjunarinnar eru of stór og veldur það m.a. flökti í rafmagnsframleiðslunni. Verið er að minnka vatnshjólin og nú eru þrjár vélanna tilbúnar og búið að prófa þá fyrstu af þeim.Pólskir dagar á Reyðarfirði
Pólskir dagar verða haldnir á Reyðarfirði um helgina með fjölbreyttri hátíðardagskrá í Grunnskóla Reyðarfjarðar og Fjarðabyggðarhöllinni. Aðaldriffjöður hátíðarinnar er ung pólsk kona af nafni Beata Marczak, starfsmaður eins af undirverktökum Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði.
Veiðiþjófa leitað
Lögregla hefur nú til rannsóknar meintan veiðiþjófnað í Þvottárskriðum. Í gær fundust þar tvö dauð hreindýr og höfðu verið skotin. Talið er að veiðiþjófarnir hafi hraðað sér á brott er þeir urðu mannaferða varir, án þess að ná dýrunum með sér.
Lögreglan á Höfn biður þá er kunna að hafa upplýsingar um málið að hafa samband.
Endurgreiði þrotabúi yfir hundrað milljónir
Jónas A. Þ. Jónsson, áður eigandi Trésmiðju Fljótsdalshéraðs, skal greiða þrotabúi fyrirtækisins rúmar hundrað þrjátíu og fjórar milljónir króna auk dráttarvaxta. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í máli Þrotabús Trésmiðju Fljótsdalshéraðs hf. gegn Jónasi 7. nóvember síðastliðinn. Niðurstaða dómsins er að tíu greiðslur frá fyrirtækinu inn á einkareikning Jónasar séu ekki réttlætanlegar og því beri honum að endurgreiða þær til þrotabúsins.