Vegna bilunar í Hitaveitu Eskifjarðar má búast við því að sundlaug bæjarins verði köld næstu daga. Reynt verður að halda pottum og vaðlaug heitum fyrir viðskiptavini. Einnig verður líkamsræktin opin eins og venjulega. Tilkynnt verður á vefnum www.fjardabyggd.is þegar viðgerðum lýkur en því miður er óvíst er hvenær það verður.
Haukur Björnsson hættir hjá Eskju hf. sem framkvæmdastjóri eftir að hafa unnið hjá félaginu í fjöldamörg ár. Haukur hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra síðan 2004 en hefur ákveðið að snúa sér að öðru. Stjórnarformaður og aðaleigandi félagsins Þorsteinn Kristjánsson mun taka við starfi sem forstjóri Eskju hf. og nánari skipulagsbreytingar verða kynntar síðar.
Elding, félag smábátaeigaenda á norðanverðum Vestfjörðum, vill að ráðgjöf um árlegan heildarafla nytjastofna á Íslandsmiðum verði færð frá Hafrannsóknastofnun til háskólasamfélagsins. Ályktun þar að lútandi var samþykkt á stjórnarfundi félagsins 8. mars. Stjórnin telur að sá trúnaðarbrestur sem orðinn er milli sjómanna og Hafrannsóknastofnunar sé farinn að skaða nauðsynlega framþróun.
Skemma í eigu Síldarvinnslunnar í Neskaupstað hrundi saman undan snjóþyngslum í gær. Skemman, sem stendur rétt innan við gamla frystihúsið í bænum, var orðin vel við aldur og kom að sögn heimamanna lítt á óvart að hún skyldi leggjast saman, það hafi í raun aðeins verið tímaspursmál. Austurglugginn hefur enn sem komið er ekki upplýsingar um hvort einhver verðmæti voru geymd í skemmunni, en allt útlit er fyrir að svo hafi ekki verið og því vonandi ekki um sérstakt tjón að ræða fyrir SVN.
Hans Friðrik Kjerúlf og fjölskylda gerðu góða ferð í Húnavatnssýslu um liðna helgi. Þar fór fram eitthvert sterkasta ísmót sem haldið hefur verið utandyra til þessa. Margir af bestu hestum landsins voru mættir til leiks. Hans keppti á Sigri frá Hólabaki í B-flokki og tölti. Fóru leikar þannig að Hans hafði sigur í báðum greinum og óhætt að segja að það sé frábær árangur sem skráist í sögubækur austfirskrar reiðmennsku.
Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars stendur Íslandsdeild Amnesty International fyrir undirskriftarsöfnun á heimasíðu samtakanna http://www.amnesty.is/undirskriftir til stuðnings konum og stúlkum í Afganistan. Þrátt fyrir loforð stjórnvalda um betri kjör kvenna er ofbeldi gegn konum og stúlkum í Afganistan enn landlægt og birtingarmyndirnar margar.