Egilsstaðabúinn María Lena Olsen keppir í módelfitness í Los Angeles í Bandaríkjunum á laugardag. Að baki er langur og strangur undirbúningur sem tekið hefur hátt í ár og krefst gríðarlegs sjálfsaga. Hún hlakkar til uppskerunnar á laugardag.
Höttur situr í þriðja sæti 1. deildar karla í körfuknattleik eftir góðan heimasigur á Fjölni á föstudag. Lokamínúturnar í leiknum voru æsispennandi og Andrés Kristleifsson reyndist betri en enginn þegar á reyndi.
Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir átti stórleik og skoraði 36 stig þegar Þróttur Neskaupstað lagði Stjörnuna 1-3 í fyrsta leik sínum eftir jólafrí í Mikasa-deild kvenna í blaki á laugardag. Þjálfarinn segir fríið hafa verið heldur langt og leikur liðsins borið þess merki.
Skíðakonan Erna Friðriksdóttir var meðal þeirra sem styrk hlutu úr afrekssjóði Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands fyrir skemmstu. Þá hefur hún einnig fengið styrk frá Fljótsdalshéraði. Erna tekur þátt í vetrarólympíuleikum fatlaðra sem fram fara í Rússlandi í mars.
Höttur tekur á móti Fjölni í fyrstu deild karla í körfuknattleik í kvöld en liðin eru jöfn að stigum í þriðja sæti deildarinnar fyrir leikinn. Blaklið Þróttar halda norður á Akureyri þar sem þau freista þess að tryggja sér sæti í úrslitakeppni bikarkeppninnar í blaki.
Höttur vann mikilvægan sigur í baráttunni um efstu sæti fyrstu deildar karla í körfuknattleik þegar liðið lagði FSu 94-98 á Selfossi á föstudag. Liðin skiptust á um að hafa forustuna í leiknum.
Leikmenn úr meistaraflokkum Þróttar Neskaupstaðar þurftu að beita handafli til að losa snjóruðningstæki sem fast var á Möðrudalsöræfum í gærmorgunn. Liðin þurftu tvær tilraunir sem tóku samtals um ellefu klukkutíma til að komast yfir öræfin og misstu af þorrablótinu í Neskaupstað.
Undirbúningstímabilið er hafið hjá austfirskum knattspyrnuliðum. Leiknir fór norður í Eyjafjörð og tók þar þátt í Kjarnafæðismótinu. Liðið vann síðustu tvo leiki sína í mótinu sem spilaðir voru um helgina.
Kvennalið Þróttar í blaki hefur keppni á ný í kvöld eftir langt jólafrí þegar það heimsækir Stjörnuna í Garðabæ á morgun. Körfuknattleikslið Hattar mætir FSu á Selfossi í kvöld.