Eysteinn Bjarni Ævarsson leikmaður Hattar lék með landsliði Íslands í körfuknattleik skipuðu leikmönnum 18 ára og yngri á norðurlandamótinu sem fram fór í Solna í Svíþjóð dagana 7. – 12. maí. Viðar Örn Hafsteinsson þjálfari Hattar var aðstoðarþjálfari landsliðsins á mótinu.
Höttur vann öruggan sigur á Fjarðabyggð 0-3 á Norðfjarðarvelli í gærkvöld í fyrsta leik liðanna í Íslandsmótinu í knattspyrnu. Fanney Þórunn Kristinsdóttur skoraði öll þrjú mörkin.
Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar vann sinn stærsta deildarsigur frá stofnun þegar liðið burstaði ÍH á Norðfjarðarvelli á föstudagskvöld 11-1 í þriðju deild karla. Hafnarfjarðarliðið átti ekki góða helgi á austfirskum knattspyrnuvöllum því í dag tapaði liðið 7-0 fyrir Huginn.
Fanney Þórunn Kristinsdóttir var hetja Hattar í 0-3 sigri á Fjarðabyggð á Norðfjarðarvelli í fyrstu deild kvenna í gærkvöldi en hún skoraði öll þrjú mörkin. Hún lék framar á vellinum en hún er vön og segist fyllilega tilbúin að gera það áfram miðað við þessa byrjun.
Hljóðið var þungt í Eysteini Haukssyni, þjálfara Hattar eftir 1-2 tap gegn nýliðum Ægis úr Þorlákshöfn í fyrstu umferð annarrar deildar karla í knattspyrnu í gær. Hann segist þó sannfærður um að liðið komist á rétta braut.
Fjórir leikmenn Þróttar Neskaupstaðar eru í íslensku landsliðunum í blaki sem hófu keppni á Smáþjóðaleikunum í Lúxemborg í dag. Fleiri leikmenn liðanna eiga ættir að rekja til Norðfjarðar þótt þeir séu ekki á mála hjá Þrótti.
Ólafur Hlynur Guðmarsson, sagðist sáttur við leik Fjarðabyggðar þrátt fyrir 0-3 tap gegn Hetti á Norðfjarðarvelli í 1. deild kvenna í gærkvöldi. Enn séu að bætast leikmenn í hópinn sem styrki hann verulega.
Leiknir Fáskrúðsfirði hampaði Síldarvinnslubikarnum í knattspyrnu eftir 4-5 sigur á Hetti í lokaleik mótsins. Austfirska knattspyrnusumarið byrjar af alvöru í dag.