Fimm fyrirtæki styrkja yngri flokka Fjarðabyggðar
Í dag var undirritað samstarfsyfirlýsing Síldavinnslunnar hf, Alcoa Fjarðaáls hf. Launafls ehf., Olíverzlunar Íslands hf., Eskju hf., SÚN og yngri flokka Fjarðabyggðar í knattspyrnu. Undirritað var í Veiðiflugunni á Reyðarfirði, en aðilar yfirlýsingarinnar skuldbinda sig að vinna saman að því að efla tækifæri barna og unglinga í Fjarðabyggð til að æfa og leika knattspyrnu með sem bestri umgjörð.
Höttur vann nágrannaslaginn: Myndasyrpa
Höttur vann í kvöld Fjarðabyggð á Eskifjarðarvelli 0-1 í toppslag annarrar deildar karla í knattspyrnu. Högni Helgason, sem áður lék með Fjarðabyggð, skoraði markið.
Halda tónleika um áhrif íslenskrar náttúru á tónskáld
Sópransöngkonan Rannveig Káradóttir og pínaóleikarinn Birna Hallgrímsdóttir halda tónleika í Egilsstaðakirkju í kvöld. Áherslan er á lög sem tengjast íslenskri náttúru en markmiðið er að sýna áhrif íslenskrar náttúru á tónskáld og textahöfunda.
Heimir: Alveg jafn sár eftir þennan leik og seinasta tapleik
Heimir Þorsteinsson, þjálfari Fjarðabyggðar, var súr í bragði eftir að lið hans hafði tapað fyrir Hetti í Austfjarðaslagnum í annarri deild karla í knattspyrnu í gærkvöld. Hann vildi samt ekki gera neitt meira úr leiknum þótt um nágrannaslag toppliðanna hefði verið að ræða.
Þrymsbikarinn afhentur í fyrsta sinn á úrtökumóti Blæs
Þrymsbikarinn var afhentur í fyrsta sinn á félags- og úrtökumóti Hestamannafélagsins Blæs á Kirkjubólseyrum á laugardag. Stefán Sveinsson frá Útnyrðingsstöðum vann bæði A-flokk og B-flokk gæðinga.
Landsbankinn styrkir barna- og unglingastarf Hattar
Nýverið undirrituðu Davíð Þór Sigurðarson, formaður Íþróttafélagsins Hattar og Arnar Páll Guðmundsson, útibússtjóri Landsbankans á Egilsstöðum samstarfssamning milli félaganna tveggja. Með samningnum verður Landsbankinn einn af aðalstyrktaraðilum barna og unglingastarfs Hattar á Egilsstöðum.
Óttar Steinn: Við stefnum á að fara upp
Óttar Steinn Magnússon, fyrirliði Hattar í knattspyrnu, segir liðið hafa sett sér það markmið að fara upp úr annarri deildinni fyrir tímabilið. Sumarið byrjar vel hjá liðinu sem vann Fjarðabyggð á Eskifjarðarvelli í gærkvöldi.
Höttur einn á toppnum eftir sigur á Völsungi
Lið Hattar er eitt í efsta sæti annarrar deildar karla í knattspyrnu eftir sigur á Völsungi á heimavelli í dag. Fjarðabyggð fylgir í humátt á eftir en talaði illa fyrir Fjallabyggð.