UÍA fólk í fyrsta sinn á palli í Íslandsglímunni
Ásmundur Hálfdán Ásmundsson og Ragna Jara Rúnarsdóttir náðu um helgina besta árangri sem Austfirðingar hafa náð í Íslandsglímunni þegar þau höfnuðu í þriðja sæti í sínum flokkum.
Ásmundur Hálfdán Ásmundsson og Ragna Jara Rúnarsdóttir náðu um helgina besta árangri sem Austfirðingar hafa náð í Íslandsglímunni þegar þau höfnuðu í þriðja sæti í sínum flokkum.
Þróttur Neskaupstað tryggði sér í dag deildarmeistaratitilinn í 1. deild kvenna í blaki þegar liðið vann HK 2-3 í Digranesi í dag. Í oddahrinunni vann Þróttur upp fimm stiga forskot þegar liðið snéri leiknum sér í hag.
Þróttur Neskaupstað varð í dag bikarmeistari kvenna í blaki eftir 3-2 sigur á HK í úrslitaleik í Laugadalshöll. Þróttur vann fyrstu tvær hrinurnar en gaf eftir og þurfti að hafa fyrir sigrinum í æsilegri oddahrinu.
Þróttur Neskaupstað varð í dag deildarmeistari kvenna í blaki eftir sigur á HK í oddahrinu. Þetta er annar titill liðsins á einni viku eftir rimmur við HK en liðin áttust við í bikarúrslitum um seinustu helgi. Agl.is var sem fyrr á staðnum.
Þróttur varð í gær bikarmeistari kvenna í blaki þegar liðið lagði HK 3-2 í gríðarlega spennandi leik. Agl.is var á staðnum og fangaði baráttuna í leiknum og fögnuðinn í lok hans.
Kvennalið Þróttar Neskaupstað spilar um helgina í úrslitum bikarkeppninnar í blaki. Möguleikar liðsins verða að teljast góðir í ljósi þess að það er í efsta sæti deildarkeppninnar.
Kristín Salín Þórhallsdóttir, fyrirliði kvennaliðs Þróttar í blaki, viðurkennir að liðið stytti hvorki sér né áhorfendum leið í leikjum sínum. Liðið tryggði sér í dag deildarmeistaratitilinn eftir sigur á HK í oddahrinu.
Kristín Salín Þórhallsdóttir, fyrirlið bikarmeistara Þróttar í blaki, segist ekki hafa spilað spennuþrungnari leik en bikarúrslitaleikinn gegn HK í dag. Þróttur lagði ríkjandi bikarmeistarana eftir æsilega oddahrinu.
Lið UÍA hampaði um helgina Íslandsmeistaratitli í unglingaflokki í glímu eftir þriðju og seinustu umferð Íslandsmótsins sem glímd var á Ísafirði. Ásmundur Hálfdán Ásmundsson vann til gullverðlauna í flokki +80 kg flokki unglinga á mótinu og fjöldi annarra glímumanna sambandsins fóru heim með verðlaun.
Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.