Ásta Kristín býður sig fram fyrir Sjálfstæðisflokkinn
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú og bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð, býður sig fram í þriðja sætið á lista Sjáflstæðisflokksins fyrir komandi Alþingiskosningar.
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú og bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð, býður sig fram í þriðja sætið á lista Sjáflstæðisflokksins fyrir komandi Alþingiskosningar.
Ekki stendur til að hætta niðurgreiðslu lyfja sem innihalda metýlfenidat til fullorðinna og eru notuð við athyglisbresti og ofvirkni. Eftirlit með ávísunum verður eflt. Notkun lyfjanna hérlendis er sú mesta sem gerist í heiminum.
Sérfræðingar eru ráðþrota gagnvart því hvernig herpesveira barst í kýr á Egilsstaðabýlinu. Veiran sjálf er reyndar ófundin og tekin verða nánari sýni úr kúnum til að staðfesta greininguna. Þá verður leitað að henni um allt Austurland. Yfirdýralæknir segir öll smáatriði verða könnuð áður en lagt verður til að lóga öllum gripum á býlinu. Lítil hætta er talin á smiti út frá bænum.
Slátra þarf þeim nautgripum sem greinst hafa með mótefni gegn BHV-1 herpesveirunni á Egilsstaðabýlinu á Völlum. Þar hafa 33 af 69 kúm greinst með mótefnið. Yfirdýralæknir segir mikilvægt að geta sýnt fram á að Ísland sé laust við sjúkdóma á borð við þá sem veiran veldur, sérstaklega vegna samningaviðræðnanna við Evrópusambandið.
Matvælastofnun hefur boðað til opins fræðslufundar um veiruna sem fannst á Egilsstaðabýlinu á Hótel Héraði klukkan 13:00 á morgun. Til stendur að taka sýni á öllum kúabúum landsins.
Ný Norðfjarðargöng eru á næsta leiti – eða svona þar um bil. Til stendur að byrja á þeim á næsta ári og byrjað er að leita að hugsanlegum framkvæmdaaðilum. Nýju göngin ættu að verða mikil samgöngubót miðað við hin hálffertugu Oddsskarðsgöng.
Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.