Vatnsmengun við Strandarveg á Seyðisfirði
Starfsfólk fyrirtækja við Strandarveg á Seyðisfirði veitti því athygli fyrr í vikunni að óvenjuleg og undarleg lykt fylgdi allt í einu vatninu úr krönum á svæðinu. Í kjölfarið tók HEF-veitur sýni sem leiddu í ljós mengun.
Undirbúa að bjóða fullorðnum bólusetningu gegn mislingum
Innan Heilbrigðisstofnunar Austurlands er unnið að því að bjóða fullorðnum einstaklingum upp á bólusetningu gegn mislingum. Ekki hafa greinst fleiri tilfelli af mislingum eftir að einstaklingur, búsettur á Norðausturlandi, veiktist í síðustu viku.Áfram snjóflóðahætta á Austurlandi
Snjóflóð halda áfram að falla í austfirskum fjöllum en ein sautján flóð hafa verið skráð í fjórðungum síðustu tíu dagana. Skíðamaður setti eitt slíkt af stað í Oddsskarði um helgina en engin slys urðu þó á fólki.
Telur álit ráðuneytisins ekki áfellisdóm yfir ferlinu
Ragnar Sigurðsson, formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar og oddviti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn, kveðst fagna því að álit mennta- og barnamálaráðuneytisins á breytingum á fyrirkomulagi fræðslumála í Fjarðabyggð liggi fyrir.Engar faglegar athugasemdir við fyrirætlanir Fjarðabyggðar
Mennta- og barnamálaráðuneytið gerir ekki efnislegar athugasemdir við þær breytingar sem bæjarstjórn samþykkti í febrúar að gera á fyrirkomulagi fræðslustofnana sveitarfélagsins. Þær virðist ef eitthvað er falla að ýmsum markmiðum farsældarlaganna. Þá telur ráðuneytið sveitarfélagið hafa talsverðar heimildir til að gefa fyrirmæli um hvernig stjórnun skóla er hagað. Það viðhafði hins vegar ekki það samráð sem því var ætlað.Bæjarstjórn Fjarðabyggðar gert að fjalla aftur um breytingar á skólahaldi eftir samráð
Mennta- og barnamálaráðuneytið telur sveitarfélagið Fjarðabyggð hafa brotið lög með að bera áformaðar breytingar á skólastofnunum sveitarfélagsins ekki undir skólaráð í grunnskólum eða foreldraráð í leikskólum. Bæjarstjórn þarf því að taka málið fyrir aftur.Bólusetningar gengu vel á Vopnafirði í gær
Á fjórða tug barna á Vopnafirði fengu í gær bólusetningu við mislingum. Gripið var til aðgerðanna eftir að smit kom upp í nærsamfélaginu um helgina. Fleiri tilfelli hafa ekki greinst enn.Hafbjörg dró vélarvana bát til Norðfjarðar
Hafbjörg, skip björgunarsveitarinnar Gerpis í Neskaupstað, kom laust fyrir klukkan fimm í dag með smábát til hafnar sem missti afl fyrir mynni Seyðisfjarðar.„Samtal og samvinna tekur tíma ef útkoman á að vera farsæl“
Formaður Skólastjórafélags Íslands, segist sáttur við úrlausn mennta- og barnamálaráðuneytisins við kvörtun félagsins vegna breytinga á skipulagi fræðslumála í Fjarðabyggð. Hann vonast til að nú hefjist það samráð sem krafist sé í lögum og það leiði til farsællar úrlausnar.Fjarðabyggð sek um að svara beiðni um smölun fjár of seint
Innviðaráðuneytið telur sveitarfélagið Fjarðabyggð hafa brotið gegn stjórnsýslulögum með óhóflegum töfum á að svara beiðni landeiganda í Stöðvarfirði um að sveitarfélagið smalaði fé af landi hans. Ráðuneytið metur ekki hvort sveitarfélagið hafi verið skylt til að smala.Mengun í neysluvatni Breiðdælinga
Lítils háttar kólígerlamengun hefur mælst í neysluvatni á Breiðdalsvík og eru viðkvæmir neytendur hvattir til að sjóða allt vatn sem neyta skal í varúðarskyni.