Svissneski maðurinn sem lést í sunnanverðum Seyðisfirði í síðustu viku hét Pascal René Danz Lunn. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi í dag.
Sveitarstjórnir Fljótsdalshéraðs og Fljótsdalshrepps hafa samþykkt að selja húsnæði Hallormsstaðaskóla. Kaupandi er 701 hotels ehf., en það félag á og rekur meðal annars Hótel Hallormsstað, Hótel Valaskjálf og veitingastaðinn Salt á Egilsstöðum.
Hinn 15. október nk. mun Freysteinn Bjarnason láta af störfum framkvæmdastjóra Samvinnufélags útgerðarmanna í Neskaupstað sökum aldurs en hann hefur gegnt starfinu frá árinu 2005. Við starfinu tekur Guðmundur Rafnkell Gíslason sem að undanförnu hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra Sjónaráss.
Þann 7. september síðastliðinn var verksamningur um dýpkun Vopnafjarðarhafnar undirritaður. Hagtak hf. tók að sér verkið, en samningsupphæðin er 157.250.000 kr. með vsk. Gert er ráð fyrir því að framkvæmdir hefjist um næstu mánaðamót og er áætlaður verktími fjórir mánuðir.
Engar umsóknir bárust um 40% stöðu hjúkrunarfræðings eða sjúkraliða á Borgarfirði eystri áður en umsóknarfresturinn rann út fyrir viku síðan. Því er ekki útlit fyrir að neinn ríkisstarfsmaður verði starfandi á Borgarfirði eystri frá næstu mánaðamótum. Þetta kom fram á vef RÚV fyrr í dag.
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar áréttaði á fundi sínum í gær fyrri stefnu sveitarfélagsins, um að það væri tilbúið til að taka á móti flóttamönnum í samstarfi við stjórnvöld.
Að öllu óbreyttu verður Fagradalsvegur í Breiðdal tekinn af vegaskrá um næstkomandi áramót. Breiðdalshreppur óskaði eftir því við Vegagerðina fyrr í sumar að niðurfellingu vegarins af vegaskrá yrði frestað frá og með 1. janúar næstkomandi, en varð ekki að ósk sinni.
Óhætt er að fullyrða að óvíða á landinu er matjurtarækt stunduð í minna mæli en á Austurlandi, enda vantar mikið upp á að slík ræktun í landsfjórðungnum komist nálægt því að uppfylla vaxandi neysluþörf heima fyrir, þó svo að góðar aðstæður til slíkrar framleiðslu séu hér víða fyrir hendi.