Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur ákveðið að taka tilboði lægstbjóðanda í endurnýjun stofnlagnar vegna snjóflóðavarnargarðs á Norðfirði. Bárust sex tilboð í verkið. Öll nema eitt voru undir kostnaðaráætlun, en hún nam tæpum 42 milljónum króna. Framkvæmdasýsla ríkisins yfirfór tilboðin og mat tilboð RBG vélaleigu-verktaka hagstæðast, en það nemur ríflega 24 milljónum króna.
Völundarsmiður og óforbetranlegur áhugamaður um ökutæki frá því fyrir 1955. Er á síðustu fimmtán árum eða svo búinn að gera upp hátt í tug gamalla traktora, amerískar og þýskar glæsikerrur, nokkra hertrukka og vörubíla. Hann á sér nú þann draum heitastan að gera gamalt mótorhjól í stand. Það er NSU hjól, ´36 módel og vantar bara í það vélina.
Gísli Jónatansson, framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði, segist sammála ákvörðun sjávarútvegsráðherra um að fella úr gildi öll leyfi til makrílveiða. Skip félagsins hafa landað töluverðu af makríl í sumar.
Ríkissaksóknari vísaði fyrir nokkru máli Hannesar Sigmarssonar,
yfirlæknis á Eskifirði, til lögreglustjórans þar. Í hans hlut kemur því
væntanlega að gefa út ákæru í málinu eða fella það niður. Þetta er í
annað sinn sem lögreglustjórinn fær málið í hendurnar en fyrr í vetur
vísaði hann því frá.
Félagsmót Freyfaxa 2009 verður haldið dagana 10. og 11. júlí næstkomandi. Í fréttatilkynningu frá félaginu segir að mótið verði með léttu sniði þetta árið og miðist að því að þátttakendur og áhorfendur verði sem allra flestir. Ókeypis verður að venju á tjaldsvæði félagsins í Stekkhólma.
Sveitarstjórn Djúpavogshrepps samþykkti samhljóða á fundi sínum 2. júlí að svipta ábúendur á bænum Stórhóli í Álftafirði leyfi til búfjárhalds. Er leyfið afturkallað með þriggja mánaða fyrirvara frá og með næstu mánaðarmótum. Matvælastofnun kærði slæman aðbúnað og vanfóðrun sauðfjár í vor í kjölfar alvarlegra athugasemda frá héraðsdýralækni og búfjáreftirlitsmanni um ástand fjár, fóðrunar og húsa. Ábúendur á Stórhóli halda nokkuð á annað þúsund fjár.
Í ár eru liðin rétt sextíu ár frá því fyrstu Ferguson-dráttarvélrnar komu til Íslands. Af því tilefni öðrum fremur hefur Bjarni Guðmundsson á Hvanneyri tekið saman bókina ...og svo kom Ferguson, með aðstoð fjölda heimildarmanna. Hún kemur út 18. júlí hjá bókaútgáfunni Uppheimum á Akranesi. Bókin er gefin út með stuðningi Landbúnaðarsafns Íslands og rennur hluti andvirðis bókarinnar til safnsins.