Aukin hæfni til starfa og gæðamál: Málþing um framhaldsfræðslu

austurbru logoMiðvikudaginn 26. febrúar nk. frá kl. 09:15 – 17:00 standa fjórar símenntunarmiðstöðvar og mennta- og menningarmálaráðuneyti fyrir málþingi um framhaldsfræðslu á Hótel Héraði á Egilsstöðum. Málþingið er opið öllum sem áhuga hafa á aukinni hæfni til starfa og gæðamálum.

Lesa meira

Ólafur Ragnar: Ævintýri hvernig Egilsstaðir hafa vaxið og blómgast – Myndir

forseti egs 0013 webÓlafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir það ævintýri líkast hvernig Egilsstaðir hafi þróast á undanförnum áratugum. Í dag sé þar orðin til umferð erlendra ferðamanna að vetri til sem enginn hefði búist við fyrir fáum árum. Hann mælir með því fyrir áhugasama að prófa að verða forseti.

Lesa meira

Hönnunarsamkeppni um lyklakippu með austfirska drekanum

list an landamaera 1List án landamæra á Austurlandi 2014 efnir til samkeppni um hönnun á lyklakippu fyrir Austurland sem sækir innblástur til landvættis Austurlands, dreka sem ver fjórðunginn fyrir ágangi. Höfundur verðlaunahugmyndarinnar hlýtur 70.000 krónur í verðlaun. Keppnin er öllum opin.

Lesa meira

Fræðsluþing Vitundarvakningar í Neskaupstað

frambodsfundur va 0010 webFræðsluþing Vitundarvakningar um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi gegn börnum verður haldið í Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaupstað þriðjudaginn 25. febrúar 2014, kl. 14 - 17.

Lesa meira

Eyrarrósin var mikið lán fyrir Skaftfell

tinna gudmunds skaftfell feb14Tinna Guðmundsdóttir, forstöðukona menningarmiðstöðvarinnar Skaftfells á Seyðisfirði, segir það hafa skipt miklu máli fyrir miðstöðina að hljóta viðurkenninguna Eyrarrósina í fyrra. Bæjarstjóri Seyðisfjarðar segir þá staðreynd að rósin hafi tvisvar komið þangað sanna hve menningarstarf sé mikils metið í bænum.

Lesa meira

Aðsóknarmet slegið á Austurfrétt: 14.000 notendur

AusturfrettEnn eitt aðsóknarmetið var slegið á Austurfrétt í síðustu viku þegar ríflega 14.000 einstakir notendur heimsóttu vefinn. Fréttir vefsins fóru víða um íslenskt samfélag í vikunni.

Lesa meira

Áhöfnin á Húna hlaut Eyrarrósina

eyrarrosin 0040 webÁhöfnin á eikarbátnum Húna II hlaut um helgina Eyrarrósina fyrir framúrskarandi menningarstarfsemi á landsbyggðinni. Dorrit Moussaieff, forsetafrú, afhenti viðurkenninguna í Skaftfelli á Seyðisfirði á laugardag.

Lesa meira

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar