Fasteignafélag í eigu Vélaverkstæðis Hjalta Einarssonar ehf. hefur samið við Íslandsbanka um kaup á blokk að Miðvangi 6 á Egilsstöðum. Í fréttatilkynningu segir að kaupin séu háð skilyrðum sem m.a. lúta að því að hægt verði að selja tilskilinn fjölda íbúða í húsinu. Auk 22 íbúða er félagsaðstaða eldri borgara og 600 fermetra verslunar- og þjónusturými á jarðhæð hússins.
Síldarvinnslan hefur ákveðið að greiða út 100 þúsund króna launauppbót til starfsmanna sem starfa við vinnslu og skrifstofu í landi.Greiðslan miðast við fullt starf og tekur mið af starfshlutfalli.Greiðslan verður greidd fyrir jól.
Jólatónleikarnir Jólafriður verða haldnir sunnudaginn 20. desember næstkomandi í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði og hefjast þeir kl. 20. Þeta er áttunda árið í röð sem tónleikarnir eru haldnir en á þeim er flutt róleg og ljúf tónlist við kertaljós og reynt að skapa notalega stemmningu. Tónlistarstjóri er Daníel Arason.
Íbúar Egilsstaða og Fella fengu rétt fyrir jólin vatn úr hinu nýja vatnsbóli Köldukvíslarveitu. Var þá slökkt á borholudæmum á Egilsstaðanesi, en vatnsbólið þar hefur veitt vatni til Héraðsbúa í yfir fjörtíu ár. Það er skammt frá Egilsstaðaflugvelli en hið nýja vatnsból er á Fagradal og mun nú þjóna þéttbýliskjörnum Egilsstaða og Fellabæjar um ókomin ár.
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti á fundi sínum 16. desember, fjárhagsáætlun fyrir árið 2010. Áætluð afkoma samantekins A og B hluta er jákvæð um eina milljón króna á árinu 2010.Endurskoðuð áætlun 2009 gerir ráð fyrir neikvæðri afkomu sem nemur 340 milljónir. Eigið fé er áætlað að nemi 879 milljónum í árslok 2010 og eiginfjárhlutfallið verði þá 15%.Veltufé frá rekstri er jákvætt um 297 milljónir, sem er 209 milljónum króna betri niðurstaða en samþykkt áætlun 2009 gerir ráð fyrir.
Jólatónleikar Katrínar Halldóru Sigurðardóttur, Ágústar Ármann og Soffíu Björgúlfsdóttur, Jólaskór, verða haldnir í Norðfjarðarkirkju, þriðjudaginn 22. desember kl. 21. Húsið opnar kl. 20:30 og lofa tónleikahaldarar því að syngja fólk í jólaskóna, svo mikil verði jólastemmningin. Aðgangseyrir er kr. 1.000.- í reiðufé.
Á
fundi bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs um miðjan mánuð var samþykkt samhljóða tillaga umhverfis- og
héraðsnefndar um að gjaldskrá vegna sorphirðu og sorpeyðingar verði lækkuð um
3,03% og verði 19.600 krónur árið 2010. Þá samþykkti bæjarstjórn á sama fundi reglur
um afslátt af fasteignaskatti til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega árið
2010.
Djúpavogsbúar gera sér ýmislegt til dundurs á aðventunni og halda á föstudag opið jólaball og á laugardag tónleika, þar sem fluttar verða tónlistarperlur úr íslenskri tónlistarsögu, allt frá Villa Vill til Mugison.
Maðurinn sem leitað var að í Fáskrúðsfirði fyrrihluta dagsins er látinn. Flak fiskibátsins sem hvolfdi skammt frá eynni Skrúð í morgun, var dregið til hafnar í Fáskrúðsfirði í dag og fannst lík mannsins, að sögn lögreglu, um borð. Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna.