Tímabundnar lokanir um Oddskarðsgöng
Oddsskarðsgöng verða lokuð í dag milli klukkan 14 og 16. Vegfarendum er bent á veg yfir Oddsskarð sem er seinfarinn malarvegur. Oddsskarðsgöng verða einnig lokuð frá klukkan 20:30 til klukkan eitt í nótt og er vegfarendum þá einnig bent á veginn yfir Oddsskarð.Skólarnir sameinaðir
Leikskólinn Glaumbær og Grunnskóli Borgarfjarðar verða frá og með skólaárinu sem er að hefjast reknir undir einni yfirstjórn.
Ótvíræður kæruréttur
Fjármálaráðuneytið hefur komist að þeirri niðurstöðu að Samtök iðnaðarins hafi „ótvíræðan kærurétt“ vegna nýbyggingar Grunnskólans á Egilsstöðum. Samið var við Malarvinnsluna og framkvæmdir hafnar án útboðs.
Nýtt félag um veiðiár
Í Neskaupstað hefur verið stofnað nýtt félag, 20+ ehf., utan um veiðiár.
Byrja á úrslitaleiknum
Dagskrá Fljótsdalsdags, lokadags Ormsteitis, hefst á úrslitaleiknum í handknattleik karla á Ólympíuleikunum.
Hádegisverðarfundur með Lord Oxburgh
Jarðfræði setrið boðar til hádegisverðarfundar með Lord Ron Oxburgh á Grand Hótel í Reykjavík á morgun, fimmtudaginn 28. ágúst.
Tengt við félagsheimili
Bæjarráð Fljótsdalshéraðs hefur samþykkt tillögu um byggingu reiðhallar með tengibyggingu við félagsheimilið Iðavalla.
Jarðfræðisetrið opnar
Jarðfræðisetrið í Gamla Kaupfélagshúsinu á Breiðdalsvík opnar formlega á laugardag með opnunarhátíð og málþingi um breska jarðfræðiprófessorin George Walker. Hann kortlagði stóran hluta austifirskra jarðlaga. Gögn Walkers verða í fyrsta sinn aðgengileg fræðimönnum og aðgengileg.