Fram kemur í Austurglugganum í dag að Björgvin Karl Gunnarsson sem leikið hefur með Hetti í körfuboltanum undanfarin ár segist vera hættur að spila með liðinu. Hann er sár og reiður við stjórn körfuknattleiksdeildarinnar. Björgvin var mótfallinn því að þjálfari síðasta vetrar, Jeff Green, yrði endurráðinn.
Keppnin Austfjarðatröllið 2008 fer fram á Austfjörðum um helgina.
Keppni hefst rétt fyrir hádegi á morgun á Vopnafirði en lýkur á
Breiðdalsvík seinni part laugardags.
Skiptum á búi Lagarfells ehf., rekstrarfélags veitinga- og
skemmtistaðarins Hetjunnar í Fellabæ, er lokið. Lýstar kröfur í
þrotabúið námu 25,2 milljónum króna.
Þráinn Lárusson, skólastjóri Hússtjórnarskólans á Hallormsstað ræðir
sonarmissinn sem hann varð fyrir í júní í nýjasta tölublaði Mannlífs. Lárus Stefán Þráinsson, framdi sjálfsmorð, en hann var fórnarlamb margra ára hrottalegs eineltis.
Í hlýindunum síðustu vikur hefur verið mikið innrennsli í Hálslón frá Brúarjökli. Undanfarna viku hefur innrennslið inn í lónið verið um það bil 33 milljón rúmmetrar á sólahring sem jafngildir að meðaltali innrennsli upp á rúma 380 rúmmetra á sekúndu. Þar af renna svo um 120 rúmmetrar á sekúndu til Fljótsdalsstöðvar til orkuframleiðslu.