Hátíðin Útsæðið alls ekki aðeins fyrir Eskfirðinga
„Margir halda að þetta sé einhver einkahátíð fyrir Eskfirðinga en svo er alls ekki og hver einasta sála mikið meira en velkomin til okkar,“ segir Kristinn Þór Jónasson, forsprakki hátíðarinnar Útsæðis á Eskifirði.
Þrjátíu ára afmæli Burstarfellsdagsins á sunnudag
„Þetta verður þrítugasta árið sem við höldum þennan viðburð en hversu lengi við getum í viðbót verður bara að koma í ljós,“ segir Eyþór Bragi Bragason, safnstjóri Minjasafnsins á Burstarfelli í Vopnafirði.
Tímamót í menningu Djúpavogs og landsins alls - Myndir
Samtímalistasafnið Ars Longa opnaði á Djúpavogi síðasta laugardag með tveimur sýningum. Því er ætlað að vera miðstöð fyrir alþjóðlega samtímalist.„Sérstakt að mæta á sama viðburðinn kvöld eftir kvöld og sjá hann þróast“
Jónas Sigurðsson heldur í kvöld fyrstu tónleikana af fimm á jafnmörgum dögum í Fjarðarborg á Borgarfirði. Tíu ár eru síðan Jónas hélt þar 18 tónleika á 20 dögum. Ráin er ekki sett jafn hátt nú, enda segir Jónas tónleikaröðina fyrir áratug hafa verið einstakan viðburð sem ekki verði leikinn eftir.„Helst útlendingar sem sýna torfkofunum einhvern áhuga“
„Það fást nú yfirleitt ekki margir á svona sérhæfð námskeið en sjö einstaklingar sýndu áhuga að vera með og nú erum við að klára að gera upp gamlan torfhlaðinn reykkofa og hann verður auðvitað að vígja með því að reykja hangikjöt þar með gamla laginu,“ segir Þorvaldur P. Hjarðar, vélfræðingur.
Hin eiginlega afmælishátíð LungA gengur vel
Hin þekkta listahátíð LungA á Seyðisfirði hófst í vikunni og sem fyrr er fjöldi fólks mætt í bæinn til að taka þátt. Hátíðin nú er með öðru sniði en verið hefur.
Metsala miða í Dyrfjallahlaupið
Þegar er búið að selja fleiri miða í Dyrfjallahlaupið nú en náðist fyrir ári síðan en þá var metþáttaka í þessu vinsæla fjallahlaupi.