


Tækninýjunar í anda skáldsins
„Stóri draumurinn er að gestir geti farið á minjasvæðið hér að neðan Gunnarshús, gengið um rústirnar og á sama tíma verið að horfa á veggina og innviðina í þessum byggingum gegnum sýndarveruleika. Enn eru ákveðnir tækniörðugleikar sem hindra það leysast vonandi á næstu árum,” segir Skúli Björn Gunnarsson, forstöðumaður Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri. Að austan á N4 heimsótti Skriðuklaustur á dögunum.
Fjarðabyggð vann Útsvar í þriðja sinn: Gaman að vinna spurningakeppnir eins og aðrar keppnir
Lið Fjarðabyggðar vann Kópavog 82-71 í úrslitaþætti spurningakeppninnar Útsvars á föstudagskvöld og varð þar með það sveitarfélag sem oftast hefur unnið keppnina. Liðsmaður segir reynslu og herkænsku hafa borgað sig á lokasprettinum.
Steinar Gunnarsson Austfirðingur ársins 2018
Steinar Gunnarsson, lögreglufulltrúi á Sauðárkróki, er Austfirðingur ársins að mati lesenda Austurgluggans/Austurfréttar. Steinar, sem er uppalinn Norðfirðingur, gaf lögreglunni á Austurlandi fíkniefnaleitarhundinn Byl í fyrra.Neisti 100 ára: Óska eftir sögum, ljósmyndum og gömlum munum
Ungmennafélagið Neisti fagnar 100 ára afmæli í ár og verður tímamótunum fagnað í lok febrúar. Af því tilefni biðlar undirbúningsnefndin til fyrrverandi og núverandi félagsmanna að senda myndir, sögur, gamla búninga, gamla muni og annað sem tengist Neista og gaman væri að sýna og segja frá í afmælisveislunni. Einnig kallar nefndin eftir nafni á nýja vallarhúsið.
„Það er auðvitað hundfúlt að missa af blótinu”
„Þetta er auðvitað úrslitaþáttur vetrarins og maður veit ekki með framtíð þáttanna,” segir Hákon Ásgrímsson, einn þeirra sem skipar lið Fjarðabyggðar sem mætir liði Kópavogs í beinni útsendingu á RÚV í kvöld.
Alltaf tilbúin að kynna sér nýjustu tækni
Héraðsprent á Egilsstöðum er rótgróið fyrirtæki á Austurlandi sem annast prentþjónustu og hönnun, ásamt því að gefa út Dagskrána, fríblaðið Kompás og ýmislegt fleira. Að austan á N4 leit við þar fyrir stuttu.
Hammondorgelið alltaf átt stóran sess í rokki og róli
Segja má að rokk og ról verði í forgrunni á fjórtándu Hammondhátíð Djúpavogs sem fram fer dagana 25.-28. apríl næstkomandi.